Fjarkennsla í beinni

Hvernig fer Fjarkennsla í beinni fram? Fjarkennslan okkar fer fram í beinni útsendingu sem þýðir einfaldlega að þú getur tekið þátt í

Fjarkennsla í beinni

Fjarkennsla í beinniHvernig fer Fjarkennsla í beinni fram?

Fjarkennslan okkar fer fram í beinni útsendingu sem þýðir einfaldlega að þú getur tekið þátt í kennslustundinni algjörlega óháð staðsetningu. Hvort sem þú býrð á höfuðborgarsvæðinu og hefur ekki tök á að mæta í kennslustofuna, úti á landi eða erlendis, það skiptir ekki máli.

ATH!! Við viljum vekja sérstaka athygli á að fjöldi nemenda í hverjum bekk er að hámarki 18, óháð því hvort nemendur eru í staðnámi eða fjarkennslu í beinni. Þetta er gert til þess að viðhalda því háa þjónustustigi sem við bjóðum á öllum okkar námskeiðum og námsbrautum.

 

Nemandi í fjarkennslu í beinni á alltaf sitt sæti í kennslustofunni. Það þýðir, að fjarkennslunemandi getur alltaf mætt á staðinn og sest í sætið sitt og að auki að fjöldi nemanda fer aldrei yfir þann fjölda sem sæti íkennslustofunni telja. Fjarkennslunemendur eru jafngildir nemendum sem eru í staðnámi á allan hátt og eru á engan hátt viðbót við þá sem eru fyrir í kennslustofunni. Allir nemendur fá jafn mikla athygli frá kennaranum, hvort sem þeir eru í fjarkennslu eða á staðnum.


Til að vera með þarftu einfaldlega að opna tölvupóst sem við sendum þér og smella á tengil sem þar er að finna og þar með ertu komin/nn inn í kennslustofu hjá okkur sem fullgildur nemandi. Þú sérð og heyrir allt sem fram fer í kennslustofunni; kennarann, skjá kennarans, töfluna og samnemendur. Þú getur tekið beinan þátt í kennslunni, í umræðum eða með því að leggja fram munnlegar fyrirspurnir. Þar að auki getur þú sjálf/ur verið sýnilegur í stofunni sértu með vefmyndavél en athugið að það er ekki skilyrði.

2-3 dögum fyrir námskeiðsbyrjun færðu sendar kennslubækur og stundatöflu. Próf eru einnig tekin beint sé um diploma nám að ræða sem krefjast prófa.

Umsagnir nemenda

Fjóla sem var að ljúka Framabraut-Skrifstofuskóla nýtti sér bæði staðkennslu og fjarkennslu í beinni hafði þetta að segja:

Nemandi í fjarkennslu í beinni

"Ég er á  allan hátt mjög ánægð með þetta nám. Vegna aðstæðna þá þurfti ég að nýta mér bæði að vera á staðnum og í fjarkennslu í beinni sem mér finnst vera stór plús við þennan skóla. Ég átti mitt sæti og mína tölvu í kennslustofunni og gat þá komið þegar mér hentaði. Þegar ég  var á staðnum þá var upplifunin af fjarnemum bara jákvæð og alls ekki truflun, bara gaman að heyra og vita af fólki á línunni. Svo kom það fyrir að fjarnemar utan af landi komu í bæinn og sátu þá í tímanum með okkur og það var mjög skemmtilegt.
Fyrir mig var það Fjarkennslan í beinni sem hafði úrslitaáhrif á það hvaða nám og skóla ég valdi. Það hefur verið ómetanlegt að hafa þennan sveigjanleika í boði.
Ég ætla að bæta við mig og fara á Bókaranám framhald og ætla  að nýta mér að einhverju leiti fjarkennsluna. Takk fyrir mig."

Sjá fleiri umsagnir nemenda um fjarkennsluna í beinni

Hvaða búnað þarf ég að hafa til að taka þátt?

Það eina sem þú þarft að hafa til að taka þátt er tölva (PC), aðgangur að internetinu, head-set með hljóðnema (ath hljóðnemi er innbyggður í flestum fartölvum), vefmyndavél (ath á aðeins við ef þú vilt vera sýnileg/-ur í stofunni) og kennslubækur (kennslubækur eru innifaldar í námskeiðisgjaldi).

Ath. að ekki er hægt að tengjast fjarkennslunni í gegnum Apple-tölvu enn sem komið er (er í prófun og er væntanlegt). En ath. að það er ekkert mál að tengjast fjarkennslunni með PC tölvu og vinna á Apple-tölvuna ef fólk hefur aðgang að tveimur tölvum.

Námskeið merkt með fjarkennslumerkinu eru bæði í boði í staðkennslu og í Fjarkennslu í beinni

Hvaða námskeið eru í boði í Fjarkennslu í beinni?

All flest námskeið skólans eru í boði í Fjarkennslu í beinni. Skoðaðu það námskeið sem þú hefur áhuga á að taka og leitaðu eftir Fjarkennslumerkingunni.

Fyrir hverja er Fjarkennsla í beinni?

Fjarkennsla í beinni er fyrir alla sem hafa áhuga á að taka námskeið hjá okkur, hvort sem þú ert staðsett/-ur heima í stofu, á bókasafninu eða í fundarherberginu á vinnustaðnum þínum.

Nemendur í "beinni" hafa m.a. komið frá Hellissandi, Ólafsvík, Bíldudal, Sauðárkróki, Dalvík, Ársskógsströnd, Akureyri, Vík, Vestmannaeyjum, Egilsstöðum, Sandgerði, Reykjavík, Kaupmannahöfn, Dublin, Róm og Barcelona.

Sjá umsagnir nemenda hér

Hvernig fá fjarnemendur námsefnið?

Námsefni er innifalið í námskeiðisgjaldi (nema annað sé sérstaklega tekið fram). ATH! Námsefni er sent í pósti til fjarnemanda (nema óskað sé eftir öðru) og greiðist sendingarkostnaður af viðtakanda.

Svæði

Póstlisti

Skráðu þig á póstlistann hjá okkur og fáðu fréttir og tilboð á námskeið sent á netfangið þitt.

VELDU PÓSTLISTA

  • Promennt ehf.
  • Skeifan 11b
  • 108 Reykjavík
  • promennt@promennt.is
  • Sími 519 7550