Námskynning 18. nóvember: Framabraut-Kerfisstjórnun

Námskynning fyrir Framabraut-KerfisstjórnunÞriðjudaginn 18. nóvember munum við hafa sérstakan kynningarfund fyrir áhugasama um Framabraut-Kerfisstjórnun. Fundurinn hefst kl. 17:30 hérna hjá okkur í Promennt, Skeifunni 11b, 2.hæð (rauða húsið á bak við Rúmfatalagerinn).

Við hvetjum áhugasama til að kíkja til okkar, þar munu kennarar og fulltrúi frá fyrrverandi nemendum vera á staðnum og fara nánar yfir námið og innihald þess ásamt því að gefa þeim sem ætla að skrá sig góð ráð til undirbúnings.

Að auki munum við fara yfir þá fjármögnunarmöguleika sem í boði eru.

Endilega kíktu við!

Hér getur þú fengið nánari upplýsingar um Framabraut-Kerfisstjórnun ►