Námskynning 25.maí: Viðurkenndur bókari

Miðvikudaginn 25. maí munum við hafa sérstakan kynningarfund fyrir áhugasama um undirbúningsnám til viðurkennds bókara. Fundurinn hefst kl. 18:00 hérna hjá okkur í Promennt, Skeifunni 11b, 2.hæð (rauða húsið á bak við Rúmfatalagerinn).

Skráðu þig endilega á fundinn hér fyrir neðan, það er bæði hægt að mæta á staðinn eða fylgjast með á netinu. ATH það kostar ekki neitt að skrá sig.

Skráðu þig á kynningarfundinn - ath það kostar ekki neitt!

Við hvetjum áhugasama til að kíkja til okkar, þar mun vera farið ítarlega í uppbyggingu námsins ásamt því að gefa þeim sem ætla að skrá sig góð ráð til undirbúnings.

Að auki munum við fara yfir þá FJÁRMÖGNUNARMÖGULEIKA sem í boði eru og viljum taka fram að við kynnum með stolti glænýtt samstarf Promennt og Framtíðar námslánasjóðs sem tryggir nemendum Promennt á völdum námsleiðum möguleikann á námsláni. Nánari upplýsingar um námslánin má finna hér ►

Endilega kíktu við!