PROMENNT kappkostar að hafa ávallt á sínum snærum Microsoft sérfræðikennara með mikla reynslu úr atvinnulífinu auk þess sem þeir hafi MCT kennslugráðu frá Microsoft.
Nýlega lauk einn af kennurum okkar, Guðni Þór Hauksson, masters námi í Active Directory Windows 2008 R2 sem haldið var í höfuðstöðvum Microsoft í Redmont USA. Náminu lauk með þremur umfangsmiklum prófum sem gefa gráðuna „Microsoft Certified Master“. Guðni er fyrsti Íslendingurinn sem lýkur þessu námi og er jafnframt níundi maðurinn í Evrópu utan raða Microsoft sem nær MCM gráðunni í Active Directory. Með þessari frammistöðu er ljóst að Guðni hefur skipað sér í hóp með þeim sem hafa yfirburða þekkingu á innviðum Windows netþjóna, þekkingu sem stenst fyllilega ströngustu alþjóðlegar kröfur.