Verkefnastjórnun með MindManager

  • Rafræn námskeið í Fræðsluskýi Promennt

    Nánari upplýsingar þegar komið er inn á skráningarsíðu

Í þessu námskeiði er farið er yfir hvað er verkefnastjórnun, skipulag og utanumhald verkefna með hugbúnaðurinn MindManager.

Markmið námskeiðsins er að þátttakandi skilji hugtakið verkefnastjónun og með notkun á hugbúnaðinum MindManager við skipulag verkefna og áætlanagerð.  

 

Námskeiðið er ætlað öllum sem hafa áhuga á verkefnastjórnun. Þátttakendur þurfa að hafa góða almenna tölvukunnáttu.

Á námskeiðinu er farið yfir:

  • Skilið tilgang og ferli áætlanagerða í verkefnum
  • Notað MindManager við skipulag verkefna
  • Setja upp verkefni í MindManager
  • Laga skipulag hugkortsins að þörfum verkefnisins
  • Setja kostnað á verkþætti
  • Setja aðföng á verkþætti
  • Tímaáætlun verkþátta
  • Aðlagað tímaáætlun að vinnslu verkþátta

 

MindManager er frír í 30 daga á vef Verkefnalausna en hægt er að kaupa MindManager hugbúnaðinn á vef Verkefnalausna.

 

Námsmat

Ekki eru lögð fyrir formleg lokapróf.

Staðnám eða fjarkennsla í beinni - þitt er valið!

Fjarkennsla í beinniÞetta námskeið er kennt hjá okkur í Skeifunni en athugið að einnig er hægt að taka þátt í fjarkennslu í beinni útsendingu. Það þýðir einfaldlega að þú getur tekið þátt í kennslustundinni algjörlega óháð staðsetningu. Hvort sem þú býrð á höfuðborgarsvæðinu og hefur ekki tök á að mæta í kennslustofuna, úti á landi eða erlendis, það skiptir ekki máli.

Við viljum vekja sérstaklega athygli á að hægt er að stunda bæði staðnám og fjarnám á sama námskeiðinu, þ.e. mæta stundum á staðinn og stundum vera á línunni, allt eftir því hvað hentar hverjum nemanda.

Kynntu þér nánari upplýsingar um fjarkennsluna í beinni 

Mikilvægar upplýsingar

► Greiðslur: Hægt er að greiða í gegnum Netgíró (staðgreiðsla og dreifing) og bjóðum við einnig upp á VISA/MasterCard staðgreiðslulán til allt að 36 mánaða. Einnig bjóðum við nú upp á vaxtalausar léttgreiðslur í allt að 6 mánuði.
► Styrkir: Flest stéttarfélög/fræðslusjóðir niðurgreiða námskeið hjá Promennt. Styrkurinn fer eftir rétt hvers og eins og getur numið allt að 90% (hafa ber í huga að þetta er þó misjafnt eftir stéttarfélögum/fræðslusjóðum).
Námskeiðið er haldið í samvinnu við Verkefnalausnir ehf.
Vinsamlegast athugið að dagsetningar eru birtar með fyrirvara um að lágmarksþátttaka náist á námskeiðið.