Illustrator

  • Kvöldhópur

    Dags. 5. nóv '24 - 26. nóv '24
    Dagar þri, fim
    Tími 18:00-21:00
    Lengd 37 std. - 7 skipti
    Verð 129.000 kr.
  • Rafræn námskeið í Fræðsluskýi Promennt

    Nánari upplýsingar þegar komið er inn á skráningarsíðu

Námskeið Illustrator er ætlað byrjendum í teikningu með Illustrator. Meginmarkmið námskeiðsins er að þátttakendur verði sjálfbjarga við notkun Illustrator og geti til dæmis unnið skjal með texta, formum og myndum. Mælt er með að taka eigin tölvu með í námskeiðið.

- ÁRSAÐGANGUR AÐ ADOBE CREATIVE CLOUD FYLGIR -

Inntökuskilyrði

Þekking á Windows og ritvinnslu, s.s. Microsoft Word og grunnþekking í Photoshop.

Markmið

Í lok námskeiðsins hefur þátttakandi öðlast grunnþekkingu á forritinu til að geta unnið skjal með texta, formum og myndum.

Viðfangsefni

Á námskeiðinu eru eftirfarandi atriði tekin fyrir:

  • Grunnatriði við notkun Illustrator sem alhliða vector (línuteiknunar-) forrit.
  • Myndir búnar til, grunnform, marghyrningar, stjörnur og gormar.
  • Notkun helstu teikniverkfæra, röðun myndflata, sameining myndhluta/-eininga og sundrun.
  • Lögun og stærð hluta breytt.
  • Notkun „Transformation“ verkfæranna.
  • Unnið með liti í myndum.
  • Mótun texta og aðlögun að myndformum og línum.
  • Samspil texta og forma tekið fyrir.
  • Notkun laga í myndum.
  • Prentun og frágangur.

Námsefni

Allt kennsluefni er innifalið, ásamt ársaðgangi að Adobe Creative Cloud.

Tímasetning kennslu

Kennt er á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 18:00-21:30 og valda laugardaga kl 9-12:30.

Námsmat

Ekki eru lögð fyrir formleg próf en mikil áhersla er lögð á að leiðbeinandi og þátttakendur fari sem oftast yfir það sem hefur áunnist til að ýta undir stöðugar framfarir.

Staðnám eða Fjarkennsla í beinni - þitt er valið!

Þetta námskeið er kennt hjá okkur í Skeifunni en athugið að einnig er hægt að taka þátt í Fjarkennslu í beinni útsendingu. Það þýðir einfaldlega að þú getur tekið þátt í kennslustundinni algjörlega óháð staðsetningu. Hvort sem þú býrð á höfuðborgarsvæðinu og hefur ekki tök á að mæta í kennslustofuna, úti á landi eða erlendis, það skiptir ekki máli.

Við viljum vekja sérstaklega athygli á að hægt er að stunda bæði staðnám og fjarnám á sama námskeiðinu, þ.e. mæta stundum á staðinn og stundum vera á línunni, allt eftir því hvað hentar hverjum nemanda.

Kynntu þér nánari upplýsingar um Fjarkennsluna í beinni

 

 

Mikilvægar upplýsingar

Greiðslur: Bjóðum upp á VISA/MasterCard staðgreiðslulán til allt að 36 mánaða. Einnig bjóðum við nú upp á vaxtalausar léttgreiðslur í allt að 6 mánuði.
Styrkir: Flest stéttarfélög/fræðslusjóðir niðurgreiða námskeið hjá Promennt. Styrkurinn fer eftir rétt hvers og eins og getur numið allt að 90% (hafa ber í huga að þetta er þó misjafnt eftir stéttarfélögum/fræðslusjóðum).
►Vinsamlegast athugið að dagsetningar eru birtar með fyrirvara um að lágmarksþátttaka náist á námskeiðið.

Flokkur Dags. Dagar Tími Verð
Staðarnám / Onsite 05.11. 2024 -
26.11. 2024
þri, fim 18:00-21:00 129.000 kr. Skráning / Registration
Fjarkennsla í beinni / Remote 05.11. 2024 -
26.11. 2024
þri, fim 18:00-21:00 129.000 kr. Skráning / Registration