Alþjóðleg próf
Promennt er vottuð alþjóðleg prófamiðstöð fyrir tvær af stærstu prófamiðstöðvum heims. Almennir prófdagar eru á mánudögum og föstudögum, kl. 13, allt árið (þó með örfáum undantekningum). Ath að einstaka próf hafa sérstaka prófadaga, en þetta er sérstaklega í tilfelli Toefl.
►Prometric ∙ Pearson Vue
PROMENNT er vottuð prófamiðstöð fyrir tvær af stærstu prófamiðstöðvum heims: Prometric og Pearson Vue. Í gegnum þessa tvo aðila getur
PROMENNT því boðið upp á nær öll stöðluð alþjóðleg próf sem tengjast m.a. upplýsingatækni og
fjármálageiranum.
►TOEFL - stöðupróf í ensku
Þar að auki er Promennt viðurkennd prófamiðstöð fyrir Toefl - próf sem notuð eru til að meta kunnáttu fólks í enskri tungu.
Við viljum vekja athygli á því að allar upplýsingar um TOEFL prófin ásamt skráningu í próf er að finna á vef ETS, www.ets.org. Finndu dagsetningu í prófið sem hentar þér og skráðu þig í prófið. Á þessum vef er einnig að finna greinargóðar upplýsingar um undirbúning fyrir prófið, æfingapróf, kennsluefni ofl.
Takmarkað sætaval - Athugið að nánast undantekningalaust er uppbókað í prófið og því hvetjum við fólk til að skrá sig mjög snemma (á www.ets.org).
Nánari upplýsingar fyrir þá sem eru núþegar búnir að skrá sig í prófið.
Hjálplegir linkar:
