Guðni lauk Microsoft Certified Master námi í Active Directory Windows 2008 R2 sem haldið var í höfuðstöðvum Microsoft í Redmont USA. Náminu lauk með þremur umfangsmiklum prófum sem gefa gráðuna „Microsoft Certified Master“. Guðni er fyrsti Íslendingurinn sem lýkur þessu námi og er jafnframt níundi maðurinn í Evrópu utan raða Microsoft sem nær MCM gráðunni í Active Directory. Með þessari frammistöðu er ljóst að Guðni hefur skipað sér í hóp með þeim sem hafa yfirburða þekkingu á innviðum Windows netþjóna, þekkingu sem stenst fyllilega ströngustu alþjóðlegar kröfur.
Starfssvið: Grafísk Hönnun, vefsíðugerð og margmiðlun. Sérfræðingur í Photoshop, Premiere, After Effects og öllum helstu Adobe forritunum ásamt Autodesk Maya og 3D Studio Max
Starfssvið: Tölvukennsla, kennsla viðskiptafaga (bókhald, tölvubókhald, verslunarreikningur, tollskýrslugerð) og sérkennsla.
Menntun: Tollskóli ríkisins, Framhaldsskólakennari og BA í Bókasafns- og upplýsingafræði frá Háskóla Íslands. Tölvukennaranám frá Rafiðnaðarskólanum (með sérstakri áherslu á kennslufræði fullorðinna).
Starfsferill: Tollstjórinn í Reykjavík, Viðskipta- og Tölvuskólinn, Rafiðnaðarskólinn, Tölvuskólinn Þekking
Kennsluferill: Tollskóli ríkissins, Viðskipta- og Tölvuskólinn, Rafiðnaðarskólinn og Tölvuskólinn Þekking. Ýmis kennsla og námskeið við fjölmarga skóla.
Viðskiptafræðingur. Kennari á bókhaldsbraut skólans. Hefur kennt m.a. við Tölvuskóla Reykjavíkur, Viðskipta og tölvuskólann, hjá Maritech við þróun Navision bókhaldsforritsins.
B.ed í kennslufræðum. Tölvukennaranám frá Rafiðnaðarskólanum með sérstakri áherslu á kennslufræði fullorðinna). Hefur mikla reynslu í námsefnisgerð fyrir öll stig menntakerfisins. Hefur kennt s.l. 7 ár í einkageiranum, s.s. Markaðs- og sölunámskeið, stjórnunar- og skipulagsnámskeið, námstækni ofl.