Dags. | 19. mar '19 - 26. mar '19 |
Dagar | þri, fim |
Tími | 17:30-21:00 |
Lengd | 15 std. - 3 skipti |
Verð | 99.000 kr. |
Farið er yfir einkenni verkefna og helstu hugtök verkefnastjórnunar. Hugbúnaðurinn MindManager er kynntur til sögunnar og farið er yfir hvernig hann nýtist við stýringu verkefna.
Námskeiðið er ætlað öllum sem hafa áhuga á verkefnastjórnun. Þátttakendur þurfa að hafa góða almenna tölvukunnáttu.
Að loknu námskeiði getur þátttakandi:
Farið er yfir grundvallaratriði í verkefnastjórnun:
Þátttakendur vinna verkefni þar sem unnið er með helstu viðfangsefni námskeiðsins.
Ekki eru lögð fyrir formleg lokapróf.
Þetta námskeið er kennt hjá okkur í Skeifunni en athugið að einnig er hægt að taka þátt í fjarkennslu í beinni útsendingu. Það þýðir einfaldlega að þú getur tekið þátt í kennslustundinni algjörlega óháð staðsetningu. Hvort sem þú býrð á höfuðborgarsvæðinu og hefur ekki tök á að mæta í kennslustofuna, úti á landi eða erlendis, það skiptir ekki máli.
Við viljum vekja sérstaklega athygli á að hægt er að stunda bæði staðnám og fjarnám á sama námskeiðinu, þ.e. mæta stundum á staðinn og stundum vera á línunni, allt eftir því hvað hentar hverjum nemanda.
Kynntu þér nánari upplýsingar um fjarkennsluna í beinni ►
► Greiðslur: Hægt er að greiða í gegnum Netgíró (staðgreiðsla og dreifing) og bjóðum við einnig upp á VISA/MasterCard staðgreiðslulán til allt að 36 mánaða. Einnig bjóðum við nú upp á vaxtalausar léttgreiðslur í allt að 6 mánuði.
► Styrkir: Flest stéttarfélög og fagfélög styrkja félagsmenn sína myndarlega til náms hjá okkur. Kannaðu rétt þinn hjá þínu félagi. Þú getur líka haft samband okkur í síma 519-7550 eða sendu okkur línu á promennt@promennt.is og við aðstoðum þig við að finna út úr hvaða styrkjum þú átt rétt á.
► Vinsamlegast athugið að dagsetningar eru birtar með fyrirvara um að lágmarksþátttaka náist á námskeiðið.
► Námskeiðið er haldið í samvinnu við Verkefnalausnir ehf.
Þessi vefur notar vefkökur til að tryggja sem besta upplifun þegar hann er heimsóttur. Þessi borði hverfur þegar þú veitir okkur þitt samþykki. Með því að heimsækja vefi Promennt samþykkir þú skilmála okkar um vefkökur (cookies) Lesa nánar