Inngangur að reikningsskilum

Á þessu hagnýta námskeiði verður farið í útreikning á vörubrigðum skv. Fifo eða meðaltalsaðferð og raunhæf dæmi tekin.  Skoðaðar verða helstu reglur varðandi afskriftir og lögð fyrir verkefni í bókhaldslegri fyrningu. Reiknuð verða bæði út verðtryggð og óverðtryggð lán og farið í mun á skammtíma-, langtíma-, annuitets- og kúlulánum.  Stillt verður upp ársreikningi þar sem leiðrétta þarf prófjöfnuð og gera ýmsar lokafærslur. 

Markmið

Markmiðið með námskeiðinu er að nemendur öðlist góða þekkingu og færni í ársreikningagerð, útreikningum á birgðum skv. ýmsum aðferðum, lánaútreikningar og fyrning skv. bókhaldslegri fyrningu.

Viðfangsefni

  • Ársreikningur ítarlegur
  • Birgðaútreikningur
  • Lánaútreikningur
  • Fyrningar (bókhaldsleg fyrning)

Farið verður í útreikning á vörubrigðum skv. Fifo eða meðaltalsaðferð og raunhæf dæmi tekin.  Skoðaðar verða helstu reglur varðandi afskriftir og lögð fyrir verkefni í bókhaldslegri fyrningu.  Reiknuð verða bæði út verðtryggð og óverðtryggð lán og farið í mun á skammtíma-, langtíma-, annuitets- og kúlulánum.  Stillt verður upp ársreikningi þar sem leiðrétta þarf prófjöfnuð og gera ýmsar lokafærslur.

Námsmat

Ekki eru lögð fyrir formleg próf en mikil áhersla er lögð á að leiðbeinandi og þátttakendur fari sem oftast yfir það sem hefur áunnist til að ýta undir stöðugar framfarir.

Staðnám eða fjarkennsla í beinni - þitt er valið!

Fjarkennsla í beinniÞetta námskeið er kennt hjá okkur í Skeifunni en athugið að einnig er hægt að taka þátt í fjarkennslu í beinni útsendingu. Það þýðir einfaldlega að þú getur tekið þátt í kennslustundinni algjörlega óháð staðsetningu. Hvort sem þú býrð á höfuðborgarsvæðinu og hefur ekki tök á að mæta í kennslustofuna, úti á landi eða erlendis, það skiptir ekki máli.

Við viljum vekja sérstaklega athygli á að hægt er að stunda bæði staðnám og fjarnám á sama námskeiðinu, þ.e. mæta stundum á staðinn og stundum vera á línunni, allt eftir því hvað hentar hverjum nemanda.

Kynntu þér nánari upplýsingar um fjarkennsluna í beinni ►

Annað

►Greiðslur: Hægt er að greiða í gegnum Netgíró (staðgreiðsla og dreifing) og bjóðum við einnig upp á VISA/MasterCard staðgreiðslulán til allt að 36 mánaða. Einnig bjóðum við nú upp á vaxtalausar léttgreiðslur í allt að 6 mánuði.
►Styrkir: Flest stéttarfélög og fagfélög styrkja félagsmenn sína myndarlega til náms hjá okkur. Kannaðu rétt þinn hjá þínu félagi. Þú getur líka haft samband okkur í síma 519-7550 eða sendu okkur línu á promennt@promennt.is og við aðstoðum þig við að finna út úr hvaða styrkjum þú átt rétt á.

►Vinsamlegast athugið að dagsetningar eru birtar með fyrirvara um að lágmarksþátttaka náist á námskeiðið.