Vinna í hæð (VIH) - Enska

Á námskeiðinu Vinna í hæð (VIH) eru kennd grundvallaratriði í fallvörnum. Kynning á búnaði, ferli og verklagi. Þetta námskeið er kennt á ENSKU.

Forkröfur

Til þess að geta tekið námskeiðið Vinna í hæð þarf nemandi að hafa lokið eftirfarandi námskeiðum:

  1. Heilsa og öryggi 1 (fornám)

Matsaðferð

Próf, lágmarkeinkunn 8 (80%) , mæting og virkni á námskeiðinu. Staðbundið UHÖ þar sem þess er krafist.

Markmið

Að loknu námskeiði skal námsmaður þekkja, kunna og geta gert grein fyrir fallvarnarvinnureglum og búnaði.

Enn frekar er markmið námskeiðsins að námsmaður:

  • Skilji mikilvægi krafna og tilgang þess að nota verklag sem tryggir að réttar leiðir séu farnar við vinnu í hæð
  • Skilji að með réttu verklagi má koma í veg fyrir slys
  • Viti hvar nálgast má leiðbeiningar, gátlista og gögn vegna vinnu í hæð
  • Viti hver er forgangsröðun fallvarna
  • Þekki fallhættur og getur greint þær
  • Þekki búnað og getur valið réttan búnað við réttar aðstæður
  • Kunni skil á björgunaráætlun og gerð áhættugreingar við vinnu í hæð
  • Viti hverjar skyldur og ábyrgð, verkkaupa, verksala og starfsmanna eru
  • Geti útskýrt skoðanir og eftirlit á búnaði
  • Þekki reglur um uppsetningu og eftirlit með vinnupöllum
  • Þekki og skilji skilgreiningar og orðanotkun varðandi vinnu í hæð

Námslýsing

Megináhersla er lögð á að fara yfir það verklag sem tryggir rétt vinnubrögð við vinnu í hæð. Gerð er grein fyrir hvar nálgast má leiðbeiningar vegna vinnu við hæð og hvernig skal forgangsraða fallvörnum. Nemendur fá að kynnast búnaði sem notaður er og lærir að nota hann við rétta aðstæður. Farið er yfir skyldur og ábyrgð hvers og eins á vinnusvæði ásamt því sem farið er yfir hvaða reglur eru í gildi um uppsetningu á vinnupöllum og hvernig eftirliti á búnaði er háttað.

Kennsluaðferð

Á námskeiðinu beitir leiðbeinandi mismunandi kennsluaðferðum. Lögð er áhersla á að nemendur fái tækifæri til að ræða saman og setja sig inn í mismunandi aðstæður á vinnusvæði. Námskeiðið er kennt á ensku.

Námsefni

Tungumál: kennsla fer fram á ensku.

Vinsamlegast athugið að dagsetningar eru birtar með fyrirvara um að lágmarksþátttaka náist á námskeiðið.