**SKRÁNINGU ER LOKIÐ Í ALLA PRÓFHLUTA**
Prófhluti II - Skattskil er hluti af þeim prófum sem haldin eru til viðurkenningar bókara 2021 með vísan til laga nr. 145/1994 um bókhald.
*Þó háð því að lágmarksfjöldi próftaka náist.
**SKRÁNINGU ER LOKIÐ Í ALLA PRÓFHLUTA**
Skráningarfrestur í prófhluta II rennur út fimmtudaginn 9. september kl. 23:59.
ATH að enginn möguleiki er á að skrá sig eftir þann tíma og eru engar undantekningar gerðar þar á.
Próftakar bera sjálfir ábyrgð á því að skrá sig í próf. Öllum er frjálst að skrá sig í próf.
Þeir sem stefna að því að öðlast viðurkenningu bókara verða að hafa lokið prófum í öllum prófhlutum eigi síðar en í janúar/febrúar 2024.
Prófið verður rafrænt heimapróf.
Prófið verður tekið á Excel í vafra. Tölvubúnaður og nettenging er alfarið á ábyrgð próftaka.
Prufuaðgangur að prófakerfinu, til að próftakar átti sig á umhverfinu, verður gerður aðgengilegur nokkru fyrir próf.
Próftökugjald fyrir þetta próf er 42.500 kr.
Til þess að öðlast próftökurétt þarf að skrá sig hér á síðunni og greiða prófgjald fyrir þetta próf í síðasta lagi á eindaga; miðvikudaginn 3. nóvember kl. 23:59.
Greiðsluseðill er sendur í heimabanka um leið og skráningarfrestur rennur út þann 9. september. ATH ekki er hægt að greiða greiðsluseðil eftir að eindaga lýkur.
Um efnissvið prófsins vísast til 3. gr. reglugerðar nr. 649/2019 um próf til viðurkenningar bókara og til prófefnislýsingar sem birt er á heimasíðu atvinnuvega- og nýsköðunarráðuneytisins www.anr.is.
Öll gögn eru leyfð í prófinu.
Umsóknum um lengri próftíma og/eða sérúrræði skal skila inn með því að senda tölvupóst á vbprof@promennt.is í síðasta lagi 30. september.
Til að hægt sé að veita sértæk úrræði í prófinu þarft þú að verða þér út um gögn frá viðeigandi sérfræðingi, sem staðfestir þörf fyrir úrræði og jafnvel koma í viðtal til náms- og starfsráðgjafa. Gengið verður frá sérstöku skriflegu samkomulagi um öll úrræði. Athugið að það getur tekið langan tíma að fá tíma hjá sérfræðingi svo að mælt er með að gerðar séu ráðstafanir strax.
Mikilvægt er að sótt sé um sérúrræði með góðum fyrirvara (strax eftir skráningu í prófið).
Þessi vefur notar vefkökur til að tryggja sem besta upplifun þegar hann er heimsóttur. Þessi borði hverfur þegar þú veitir okkur þitt samþykki. Með því að heimsækja vefi Promennt samþykkir þú skilmála okkar um vefkökur (cookies) Lesa nánar