Cisco Certified Network Associate

Cisco Certified Network Associate gráðan er talin ein sterkasta gráðan í upplýsingatækni sem völ er á. Gráðan hentar þeim sem vilja verða sérfræðingar í uppbyggingu á nútíma tölvunetum og þeim tækjum sem notuð eru í samskiptum á nær- og víðnetum.

Námsbrautin er undirbúningur fyrir prófið 200-301 sem er CCNA prófið frá CISCO. Um er að ræða mjög gagnlegt og áhugavert nám sem gerir talsverðar kröfur til nemenda.

Fræðsluskýið - upptökur frá kennslustundum!

NÝTT: nú fá nemendur upptökur af öllum kennslustundum í Fræðsluskýi Promennt. Þetta veitir frábæran stuðning við námið sem mun gagnast nemendum sérlega vel hvort sem námið er stundað í fjarkennslu eða í staðnámi.

 

Fyrir hverja?

Námið hentar jafnt þeim, sem hafa grunnþekkingu á tölvu- og netkerfi og langar að styrkja stöðu sína á vinnumarkaði, sem og Microsoft tæknimönnum sem vilja efla þekkingu sína á netkerfum.
Gert er ráð fyrir heimavinnu milli kennsludaga.

Inntökuskilyrði

Góður skilningur og þekking á Windows umhverfinu og grunnþekking á netkerfum ásamt lestrarfærni í ensku.    

Markmið

Að námskeiði loknu eiga nemendur að geta:

  • sett upp og bilanagreint einföld netkerfi og skilgreint hvernig þau eru uppbyggð
  • skilið og skilgreint samskiptastaðla, aðallega TCP/IP
  • notað subnetting tækni og VLSM
  • sett upp einfalda routera (beina) og switcha (skipta) með CISCO IOS stýrikerfi

Viðfangsefni

  • Einföld net sett upp og bilanagreind
  • Farið yfir samskiptastaðla sem tengjast netkerfum s.s. TCP/IP, EIGRP, OSPF, RIP, Frame-Relay, PPP o.fl
  • Farið yfir hvernig við stillum beina og skipta til þess að sinna ákveðnum hlutverkum, t.d. setja upp access lista á beina og stilla port security á beina o.fl

Tímasetningar  kennslu

  • Kvöldhópur: Kennt er á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 17:30-21:00 og valda laugardaga að auki frá kl. 9-16 (að meðaltali einu sinni í mánuði).

Staðnám eða fjarkennsla í beinni - þitt er valið!

Þetta námskeið er kennt hjá okkur í Skeifunni en athugið að einnig er hægt að taka þátt í fjarkennslu í beinni útsendingu. Það þýðir einfaldlega að þú getur tekið þátt í kennslustundinni algjörlega óháð staðsetningu. Hvort sem þú býrð á höfuðborgarsvæðinu og hefur ekki tök á að mæta í kennslustofuna, úti á landi eða erlendis, það skiptir ekki máli.

Við viljum vekja sérstaklega athygli á að hægt er að stunda bæði staðnám og fjarnám á sama námskeiðinu, þ.e. mæta stundum á staðinn og stundum vera á línunni, allt eftir því hvað hentar hverjum nemanda.

Kynntu þér nánari upplýsingar um fjarkennsluna í beinni 

Annað

►Greiðslukjör: Bjóðum upp á VISA/MasterCard staðgreiðslulán til allt að 36 mánaða. 
►Styrkir: Flest stéttarfélög og fagfélög styrkja félagsmenn sína myndarlega til náms hjá okkur. Kannaðu rétt þinn hjá þínu félagi. 
►Annað: Allt kennsluefni er innifalið í námskeiðsgjaldi.

Vinsamlegast athugið að dagsetningar eru birtar með fyrirvara um að lágmarksþátttaka náist á námskeiðið.