MCSA námið er vottun fyrir kerfisstjóra í Windows 2016 netstýrikerfum. Námið er samsett úr þremur MCTS gráðum; Installation, Storage, and Compute with Windows Server 2016,
Networking with Windows Server 2016, Identity with Windows Server 2016. Saman veita þessar gráður þátttakendum vottunina MCSA (Microsoft Certified Solution Associate)
Innifalið í námskeiðsgjaldi eru þrjár tilskildar próftökur og allt kennsluefni.
Þeir sem útskrifast af þessari braut fá vottunina „Microsoft Certified Solutions Associate" - MCSA Windows Server 2016.
Þessi vottun er mjög mikilvæg fyrir þá sem vilja auka forskot sitt enn frekar í upplýsingatæknigeiranum með nýjustu þekkingu og vottun. Rannsóknir hafa einnig sýnt að framleiðni í teymum sem vinna með Microsoft tækni eykst því fleiri sem hafa vottun á viðfangsefninu.
Þetta nám hentar þeim sem hafa góða þekkingu á Windows umhverfinu og netkerfum, sem og starfandi kerfisstjórum í stórum netum sem vilja dýpka þekkingu sína og öðlast þessa vottun.
Gerð er krafa um góðan skilning og þekkingu á Windows umhverfinu og grunnþekkingu á netkerfum ásamt lestrarfærni í ensku.
MCSA er samsett úr þremur gráðum:
Námið fer fram í formi fyrirlestra, verkefnavinnu og verklegra æfinga. Námsbrautin samanstendur af eftirfarandi þremur námskeiðum og er hægt að áfangaskipta náminu.
Smelltu á heiti námskeiðs til að fá ítarlega lýsingu á innihaldi hvers.
Notað er vottað Microsoft MOC-kennsluefni og annað það efni sem Microsoft mælir með til undirbúnings MCSA gráðunni.
Þetta námskeið er kennt hjá okkur í Skeifunni en athugið að einnig er hægt að taka þátt í fjarkennslu í beinni útsendingu. Það þýðir einfaldlega að þú getur tekið þátt í kennslustundinni algjörlega óháð staðsetningu. Hvort sem þú býrð á höfuðborgarsvæðinu og hefur ekki tök á að mæta í kennslustofuna, úti á landi eða erlendis, það skiptir ekki máli.
Við viljum vekja sérstaklega athygli á að hægt er að stunda bæði staðnám og fjarnám á sama námskeiðinu, þ.e. mæta stundum á staðinn og stundum vera á línunni, allt eftir því hvað hentar hverjum nemanda.
Kynntu þér nánari upplýsingar um fjarkennsluna í beinni ►
►Greiðslukjör: Bjóðum upp á VISA/MasterCard staðgreiðslulán til allt að 36 mánaða. Einnig er hægt að greiða í gegnum Netgíró (staðgreiðsla eða skipta greiðslum).
►Styrkir: Flest stéttarfélög og fagfélög styrkja félagsmenn sína myndarlega til náms hjá okkur. Kannaðu rétt þinn hjá þínu félagi.
►Annað: Allt kennsluefni er innifalið í námskeiðisgjaldi ásamt þremur tilskildum próftökum.
►Vinsamlegast athugið að dagsetningar eru birtar með fyrirvara um að lágmarksþátttaka náist á námskeiðið.
Þessi vefur notar vefkökur til að tryggja sem besta upplifun þegar hann er heimsóttur. Þessi borði hverfur þegar þú veitir okkur þitt samþykki. Með því að heimsækja vefi Promennt samþykkir þú skilmála okkar um vefkökur (cookies) Lesa nánar