Grafísk hönnun

  • "Mjög skemmtilegt og gagnlegt og nýttist mér strax í mínu starfi."
    Mjög skemmtilegt og gagnlegt og nýttist mér strax í mínu starfi. Kennarinn var mjög góður og hafði mikla þekkingu á efninu.
    Steindóra Bergþórsdóttir (Grafísk hönnun)
  • "Ég á eftir að velja Promennt aftur"
    Námskeiðið var í alla staði ágætt. Víðtæk og hröð yfirferð en jafnframt alltaf hægt að fá að sjá eitthvað aftur og aftur. Nú get ég lagfært ljósmyndir, búið til myndir/logo og sett upp auglýsingar/bæklinga. Rosalega gott að geta alltaf flett upp í bókunum sem ég fékk með námskeiðinu. Ég á eftir að velja Promennt aftur! Takk fyrir mig. :)
    Katrín Sif Andersen (Grafísk hönnun)
  • Kvöldhópur

    Dags. 27. feb '24 - 30. apr '24
    Dagar þri, fim, lau
    Tími 18:00-21:30 (lau 09:00-12:30)
    Lengd 105 std. - 20 skipti
    Verð 289.000 kr.
  • Rafræn námskeið í Fræðsluskýi Promennt

    Nánari upplýsingar þegar komið er inn á skráningarsíðu

Vinsælt og hagnýtt nám í grafískri hönnun sem er ætlað þeim sem eru að stíga fyrstu skrefin í grafískri vinnslu, vilja skapa sér forskot í frekara hönnunarnámi (t.d. á háskólastigi) og jafnvel hanna markaðsefnið sjálft.

Á námskeiði eru tekin fyrir þrjú hönnunarforrit, Photoshop (myndvinnsla), Illustrator (teikning) og InDesign (umbrot). Nemendur koma til með að hanna auglýsingar fyrir dagblöð og tímarit og vinna bækling, en einnig er farið í það hvernig ganga á frá verkefnum í Acrobat Distiller (PDF). Mælt er með að taka eigin tölvu með í námskeiðið. 

- ÁRSAÐGANGUR AÐ ADOBE CREATIVE CLOUD FYLGIR -

Inntökuskilyrði

Þátttakendur þurfa að vera tölvuvanir til að geta nýtt sér námskeiðið að fullu. Gott er (þó ekki skilyrði) að þekkja eitthvað til stafrænnar myndvinnslu, grafíska miðlun og prentferli. Að öðru leyti eru forritin öll tekin frá grunni.

Markmið

Í lok námskeiðs getur þátttakandi meðal annars:

  • Unnið með Photoshop, Illustrator og Indesign forritin til að hanna auglýsingar fyrir prentmiðla.
  • Gengið frá verkefnum í Acrobat Distiller (PDF)

Viðfangsefni

Forrit sem tekin eru fyrir á þessu námskeiði (smelltu á heiti þeirra til að fá nánari lýsingu):

Námsefni

Allt kennsluefni innifalið. - ÁRSAÐGANGUR AÐ ADOBE CREATIVE CLOUD FYLGIR -

Námsmat

Ekki eru lögð fyrir formleg próf en mikil áhersla er lögð á að leiðbeinandi og þátttakendur fari sem oftast yfir það sem hefur áunnist til að ýta undir stöðugar framfarir.

Tímasetning kennslu

Kennt er á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 18:00-21:30 og valda laugardaga kl 9-12:30.

Staðnám eða Fjarkennsla í beinni - þitt er valið!

Þetta námskeið er kennt hjá okkur í Skeifunni en athugið að einnig er hægt að taka þátt í fjarkennslu í beinni útsendingu. Það þýðir einfaldlega að þú getur tekið þátt í kennslustundinni algjörlega óháð staðsetningu. Hvort sem þú býrð á höfuðborgarsvæðinu og hefur ekki tök á að mæta í kennslustofuna, úti á landi eða erlendis, það skiptir ekki máli. Við viljum vekja sérstaklega athygli á að hægt er að stunda bæði staðnám og fjarnám á sama námskeiðinu, þ.e. mæta stundum á staðinn og stundum vera á línunni, allt eftir því hvað hentar hverjum nemanda.

 

Kynntu þér nánari upplýsingar um fjarkennsluna í beinni

 

Annað

►Greiðslur: Hægt er að greiða í gegnum Netgíró (staðgreiðsla og dreifing) og bjóðum við einnig upp á VISA/MasterCard staðgreiðslulán til allt að 36 mánaða. Einnig bjóðum við nú upp á vaxtalausar léttgreiðslur í allt að 6 mánuði.
►Styrkir:  Flest stéttarfélög/fræðslusjóðir og Vinnumálastofnun niðurgreiða námskeið hjá Promennt. Styrkurinn fer eftir rétt hvers og eins og getur numið allt að 90% (hafa ber í huga að þetta er þó misjafnt eftir stéttarfélögum/fræðslusjóðum).
Vinsamlegast athugið að dagsetningar eru birtar með fyrirvara um að lágmarksþátttaka náist á námskeiðið.

Flokkur Dags. Dagar Tími Verð