Dags. | 6. maí '19 - 22. maí '19 |
Dagar | mán, mið |
Tími | 17:30-21:00 |
Lengd | 31 std. - 6 skipti |
Verð | 59.000 kr. |
Sérlega gagnlegt námskeið fyrir þá sem hafa áhuga á að búa til og vinna með myndbönd. Kennt er á Adobe Premiere Pro sem er talið eitt fullkomnasta forritið í klippingu og í allri eftirvinnslu myndbanda. Athugið að kunnáttu í þessu forriti er hægt að yfirfæra á flest önnur vinsæl forrit á þessu sviði (iMovie, MovieMaker, Sony Vegas Pro, Pinnacle, Final Cut pro ofl.).
Að loknu námskeiði getur þátttakandi:
Námskeiðið byggir að mestu á raunhæfum verklegum æfingum í forritinu og verður unnið með sérstakt æfingaefni sem kennari úthlutar þannig að þátttakendur þurfa ekki að koma með eigið efni.
Megin viðfangsefni eru:
Námskeiðið er aðallega ætluð byrjendum á sviði myndbandavinnslu. Ekki er krafist þekkingar á Adobe Premiere Pro (eða neinu öðru forriti sem notað er í myndbandavinnslu) þar sem það er tekið frá grunni.
Allt kennsluefni innifalið. Stuðst er við kennslubókina Adobe Premiere Pro CS6 - Classroom in a book útgefin af framleiðanda Photoshop (rafræn bók). Einnig fá þátttakendur úthlutað sérútbúnu kennsluefni frá kennara.
Þetta námskeið er kennt hjá okkur í Skeifunni en athugið að einnig er hægt að taka þátt í fjarkennslu í beinni útsendingu. Það þýðir einfaldlega að þú getur tekið þátt í kennslustundinni algjörlega óháð staðsetningu. Hvort sem þú býrð á höfuðborgarsvæðinu og hefur ekki tök á að mæta í kennslustofuna, úti á landi eða erlendis, það skiptir ekki máli.
Við viljum vekja sérstaklega athygli á að hægt er að stunda bæði staðnám og fjarnám á sama námskeiðinu, þ.e. mæta stundum á staðinn og stundum vera á línunni, allt eftir því hvað hentar hverjum nemanda.
Kynntu þér nánari upplýsingar um fjarkennsluna í beinni ►
►Greiðslur: Hægt er að greiða í gegnum Netgíró (staðgreiðsla og dreifing) og bjóðum við einnig upp á VISA/MasterCard staðgreiðslulán til allt að 36 mánaða. Einnig bjóðum við nú upp á vaxtalausar léttgreiðslur í allt að 6 mánuði.
►Styrkir: Flest stéttarfélög og fagfélög styrkja félagsmenn sína myndarlega til náms hjá okkur. Kannaðu rétt þinn hjá þínu félagi.
►Vinsamlegast athugið að dagsetningar eru birtar með fyrirvara um að lágmarksþátttaka náist á námskeiðið.
Þessi vefur notar vefkökur til að tryggja sem besta upplifun þegar hann er heimsóttur. Þessi borði hverfur þegar þú veitir okkur þitt samþykki. Með því að heimsækja vefi Promennt samþykkir þú skilmála okkar um vefkökur (cookies) Lesa nánar