Photoshop - fyrir byrjendur

  • Rafræn námskeið í Fræðsluskýi Promennt

    Nánari upplýsingar þegar komið er inn á skráningarsíðu
Photoshop - fyrir byrjendur

Aðalmarkmið námskeiðsins Photoshop grunnur er að þátttakendur öðlist skilning á myndvinnslu í tölvum og verði sjálfbjarga við helstu aðgerðir í forritinu sem almennir notendur þurfa að kunna skil á.

Inntökuskilyrði

Almenn þekking á helstu þáttum tölvuvinnslu.

Markmið

Í lok námskeiðs hefur þátttakandi:

  • Öðlast skilning á myndvinnslu í tölvum.
  • Færni í helstu aðgerðum í forritinu sem almennir notendur þurfa að kunna skil á.

Viðfangsefni

Tekin er fyrir alhliða myndvinnsla, myndlagfæringar, litleiðréttingar og myndasamsetningar fyrir skjá og prentun. Þátttakendur læra notkun helstu áhalda, tækja og valmynda.  Vönduð kennslubók með verkefnum fyrir Photoshop CS6 fylgir

  • Kynning (Rasta & vektoramyndir)
  • Stærð mynda (Upplausn, stærðareiningar, sneiðing)
  • Val svæða (fernings-, hrings- og snöruval og töfrasproti)
  • Lagskiptingar
  • Blöndun (gegnsæi og fjöðrun brúna)
  • Hamir (sv/hv, lita og gráskala)
  • Litir og málun
  • Textavinnsla
  • Stilling mynda (birta og skerpa)
  • Vistun mynda (tegundir myndskjala og eiginleikar)

Námsmat

Ekki eru lögð fyrir formleg próf en mikil áhersla er lögð á að leiðbeinandi og þátttakendur fari sem oftast yfir það sem hefur áunnist til að ýta undir stöðugar framfarir.

Námsefni

Allt kennsluefni er innifalið nema Adobe hugbúnaður en hægt er að óska eftir því að kaupa Adobe leyfapakka á skólatilboði.

Staðnám eða fjarkennsla í beinni - þitt er valið!

Fjarkennsla í beinniÞetta námskeið er kennt hjá okkur í Skeifunni en athugið að einnig er hægt að taka þátt í fjarkennslu í beinni útsendingu. Það þýðir einfaldlega að þú getur tekið þátt í kennslustundinni algjörlega óháð staðsetningu. Hvort sem þú býrð á höfuðborgarsvæðinu og hefur ekki tök á að mæta í kennslustofuna, úti á landi eða erlendis, það skiptir ekki máli.

Við viljum vekja sérstaklega athygli á að hægt er að stunda bæði staðnám og fjarnám á sama námskeiðinu, þ.e. mæta stundum á staðinn og stundum vera á línunni, allt eftir því hvað hentar hverjum nemanda.

Kynntu þér nánari upplýsingar um fjarkennsluna í beinni 

Annað

Tímasetning: Kennt verður laugardaginn 9. febrúar kl. 9:00-12:30

►Greiðslur: Hægt er að greiða í gegnum Netgíró (staðgreiðsla og dreifing) og bjóðum við einnig upp á VISA/MasterCard staðgreiðslulán til allt að 36 mánaða. Einnig bjóðum við nú upp á vaxtalausar léttgreiðslur í allt að 6 mánuði.
►Styrkir: Flest stéttarfélög/fræðslusjóðir niðurgreiða námskeið hjá Promennt. Styrkurinn fer eftir rétt hvers og eins og getur numið allt að 90% (hafa ber í huga að þetta er þó misjafnt eftir stéttarfélögum/fræðslusjóðum). Vinnumálastofnun niðurgreiðir einnig nám hjá Promennt.

Vinsamlegast athugið að dagsetningar eru birtar með fyrirvara um að lágmarksþátttaka náist á námskeiðið.