WordPress - Vefurinn minn

Frábært námskeið í WordPress sem er kjörið fyrir alla sem vilja koma sér upp eigin vef með litlum tilkostnaði. WordPress er opinn hugbúnaður sem nýta má endurgjaldslaust og eitt vinsælasta vefumsjónarkerfið í heiminum í dag. Rafræn kennslubók á ensku fylgir með. Mælt er með að taka eigin tölvu með í námskeiðið.

Inntökuskilyrði

Þátttakendur þurfa að hafa góða almenna tölvukunnáttu.

Markmið

Að loknu námskeiði eiga nemendur að:

  • geta sótt um lén á ISNIC
  • geta sett upp WordPress vefumsjónarkerfið á hýsingu að eigin vali
  • þekkja helstu eiginleika WordPress vefumsjónarkerfisins
  • geta leitað eftir og sett upp sniðmát í WordPress vefumsjónarkerfinu
  • geta unnið með færslur og síður í WordPress vefumsjónarkerfinu
  • geta sett upp viðbætur (e. Plugins) í WordPress vefumsjónarkerfið

Viðfangsefni

Á námskeiðinu setja þátttakendur upp eigin vef frá grunni. Gert er ráð fyrir að þátttakendur sæki um sitt eigi lén eða notist við lén sem þeir kunna að eiga. Þátttakendur geta nýtt fjölbreytta hýsingarkosti og fá kennslu og aðstoð við að uppsetningu á vefumsjónarkerfi.
 
Athugið að fyrstu tvo tímanna verður farið í hýsingarmöguleika. Nemendur geta unnið á vefsvæði sem kennarinn leggur til.

Námsmat

Ekki eru lögð fyrir formleg próf en mikil áhersla er lögð á að leiðbeinandi og þátttakendur fari sem oftast yfir það sem hefur áunnist til að ýta undir stöðugar framfarir. 

Staðnám eða fjarkennsla í beinni - þitt er valið!

Þetta námskeið er kennt hjá okkur í Skeifunni en athugið að einnig er hægt að taka þátt í fjarkennslu í beinni útsendingu. Það þýðir einfaldlega að þú getur tekið þátt í kennslustundinni algjörlega óháð staðsetningu. Hvort sem þú býrð á höfuðborgarsvæðinu og hefur ekki tök á að mæta í kennslustofuna, úti á landi eða erlendis, það skiptir ekki máli.

Við viljum vekja sérstaklega athygli á að hægt er að stunda bæði staðnám og fjarnám á sama námskeiðinu, þ.e. mæta stundum á staðinn og stundum vera á línunni, allt eftir því hvað hentar hverjum nemanda.

Kynntu þér nánari upplýsingar um fjarkennsluna í beinni 

Mikilvægar upplýsingar

Greiðslur: Bjóðum upp á VISA/MasterCard staðgreiðslulán til allt að 36 mánaða. Einnig bjóðum við nú upp á vaxtalausar léttgreiðslur í allt að 6 mánuði.
Styrkir: Flest stéttarfélög/fræðslusjóðir niðurgreiða námskeið hjá Promennt. Styrkurinn fer eftir rétt hvers og eins og getur numið allt að 90% (hafa ber í huga að þetta er þó misjafnt eftir stéttarfélögum/fræðslusjóðum).
►Vinsamlegast athugið að dagsetningar eru birtar með fyrirvara um að lágmarksþátttaka náist á námskeiðið.