dk - Grunnur

  • Morgunhópur

    Dags. 9. apr '24 - 9. apr '24
    Dagar þri
    Tími 09:00-12:00
    Lengd 3 std. - 1 skipti
    Verð 30.000 kr.
  • Rafræn námskeið í Fræðsluskýi Promennt

    Nánari upplýsingar þegar komið er inn á skráningarsíðu

Grunnnámskeið dk er góður grunnur fyrir þá sem eru að byrja að vinna á dk þar sem helstu undirstöðuatriðin eru kennd.
Á þessu hnitmiðaða námskeiði í grunnatriðum dk kerfisins læra þátttakendur á flýtihnappa dk, afmarkanir, skjámyndir og fleira.
Öll námsgögn eru á staðnum.

Námskeiðið er unnið í samstarfi við dk hugbúnað og eru kennarar námskeiðsins starfsmenn þar.

Markmið

Í lok námskeiðs:

  • Þekkir þátttakandi flýtileiðir dk
  • Hefur þátttakandi öðlast þekkingu á skjámyndum dk
  • Þekkir þátttakandi helstu afmarkanir og hálparleiðir dk o.fl.
  • Hefur þátttakandi öðlast þekkingu á skýrslum og uppflettingum

 

Viðfangsefni

Þátttakendur munu læra:

  • Á allar helstu skjámyndir í dk
  • Að nýta sér flýtihnappa dk
  • Að taka gögn út úr dk, t.d í Excel til að vinna með þau þar
  • Möguleikana á helstu afmörkunum í dk
  • Að nýta sér skýrslur og uppflettingar í dk

Námsefni

Handbók um Grunn í dk kerfinu og aðgangur að dk kennslugögnum í tölvum Promennt.

Staðnám eða Fjarkennsla í beinni - þitt er valið!

Þetta námskeið er kennt hjá okkur í Skeifunni en athugið að einnig er hægt að taka þátt í Fjarkennslu í beinni útsendingu. Það þýðir einfaldlega að þú getur tekið þátt í kennslustundinni algjörlega óháð staðsetningu. Hvort sem þú býrð á höfuðborgarsvæðinu og hefur ekki tök á að mæta í kennslustofuna, úti á landi eða erlendis, það skiptir ekki máli.

Við viljum vekja sérstaklega athygli á að hægt er að stunda bæði staðnám og fjarnám á sama námskeiðinu, þ.e. mæta stundum á staðinn og stundum vera á línunni, allt eftir því hvað hentar hverjum nemanda.

Þetta námskeið er ekki tekið upp.

Athugið að fjarnemar þurfa að setja upp dk hugbúnað á sinni tölvu og munu fá leiðbeiningar þess efnis fyrir upphaf námskeiðs.

Kynntu þér nánari upplýsingar um Fjarkennsluna í beinni

Mikilvægar upplýsingar

Greiðslur: Bjóðum upp á VISA/MasterCard staðgreiðslulán til allt að 36 mánaða. Einnig bjóðum við nú upp á vaxtalausar léttgreiðslur í allt að 6 mánuði.
Styrkir: Flest stéttarfélög/fræðslusjóðir/Vinnumálastofnun niðurgreiða námskeið hjá Promennt. Styrkurinn fer eftir rétt hvers og eins og getur numið allt að 90% (hafa ber í huga að þetta er þó misjafnt eftir stéttarfélögum/fræðslusjóðum).
►Vinsamlegast athugið að dagsetningar eru birtar með fyrirvara um að lágmarksþátttaka náist á námskeiðið.

Flokkur Dags. Dagar Tími Verð