dk - Skuldunautar og innheimtukerfi

  • Rafræn námskeið í Fræðsluskýi Promennt

    Nánari upplýsingar þegar komið er inn á skráningarsíðu

Skuldunautanámskeið dk er fyrst og fremst hugsað fyrir þá sem sinna samskiptum við skuldunauta fyrirtækis, bókhaldi og innheimtu.
Á þessu hnitmiðaða námskeiði í skuldunautakerfi dk læra þátttakendur á alla helstu þætti skuldunautaeiningarinnar og hvernig hægt er að nýta það til innheimtu.
Öll námsgögn eru á staðnum.

Námskeiðið er unnið í samstarfi við dk hugbúnað og eru kennarar námskeiðsins starfsmenn þar.

Markmið

Í lok námskeiðs getur þátttakandi:

  • Stofnað skuldunauta og nýtt sér ýmsar flokkanir og greiðsluskilmála
  • Nýtt sér uppflettingar og skýrslur kerfisins
  • Sett upp og notað innheimtukerfi banka
  • Sett upp milliinnheimtu og dráttarvexti
  • Tekið út reikningsyfirlit

Viðfangsefni

átttakendur munu læra:

  • Að stofna skuldunauta
  • Uppsetningu kerfis, s.s flokkanir og greiðsluskilmála
  • Uppflettingar og skýrslur
  • Á innheimtukerfi banka
  • Um milliinnheimtu og dráttarvexti
  • Að taka út reikningsyfirlit

Námsefni

Handbók um skuldunauta- og innheimtukerfi dk og aðgangur að dk kennslugögnum í tölvum Promennt.

Staðnám eða Fjarkennsla í beinni - þitt er valið!

Þetta námskeið er kennt hjá okkur í Skeifunni en athugið að einnig er hægt að taka þátt í Fjarkennslu í beinni útsendingu. Það þýðir einfaldlega að þú getur tekið þátt í kennslustundinni algjörlega óháð staðsetningu. Hvort sem þú býrð á höfuðborgarsvæðinu og hefur ekki tök á að mæta í kennslustofuna, úti á landi eða erlendis, það skiptir ekki máli.

Við viljum vekja sérstaklega athygli á að hægt er að stunda bæði staðnám og fjarnám á sama námskeiðinu, þ.e. mæta stundum á staðinn og stundum vera á línunni, allt eftir því hvað hentar hverjum nemanda.

Þetta námskeið er ekki tekið upp.

Athugið að fjarnemar þurfa að setja upp dk hugbúnað á sinni tölvu og munu fá leiðbeiningar þess efnis fyrir upphaf námskeiðs.

Kynntu þér nánari upplýsingar um Fjarkennsluna í beinni

Mikilvægar upplýsingar

Greiðslur: Bjóðum upp á VISA/MasterCard staðgreiðslulán til allt að 36 mánaða. Einnig bjóðum við nú upp á vaxtalausar léttgreiðslur í allt að 6 mánuði.
Styrkir: Flest stéttarfélög/fræðslusjóðir/Vinnumálastofnun niðurgreiða námskeið hjá Promennt. Styrkurinn fer eftir rétt hvers og eins og getur numið allt að 90% (hafa ber í huga að þetta er þó misjafnt eftir stéttarfélögum/fræðslusjóðum).
►Vinsamlegast athugið að dagsetningar eru birtar með fyrirvara um að lágmarksþátttaka náist á námskeiðið.