Windows Server 2019

Á þessu námskeiði er farið í Windows Server 2019 í nútíma skýja-umhverfi. Sjá nánari lýsingu á eftirfarandi síðum:

WS-011 Windows server Administrator 50 kennslustundir Kennt 26.4.-7.6.2022

WS-012 Windows server 2019 Hybrid And Azure iaas 30 kennslustundir Kennt 30.8.-15.9.2022

Eitt próf frá Microsoft er innifalið í námskeiðsgjaldi.

Fyrir hverja?

Um er að ræða mjög gagnlega og áhugaverða námskeið sem gerir talsverðar kröfur til nemenda. Þetta nám hentar þeim sem hafa áhuga á að gera sér frama á upplýsingatæknisviði með tæknistjórnun sem aðalgrein. Námskeiðið er einnig hluti af Framabraut - Tæknistjórnun.

Úrvalslið kennara - lærðu af þeim bestu!

Allir kennarar Promennt á Framabraut-Tæknistjórnun eiga það sameiginlegt að búa yfir gríðarlega mikilli reynslu í upplýsingatækni og hafa þar að auki Microsoft Certified Trainer gráðu frá Microsoft. Enn frekar erum við stolt af því að hafa í kennaraliðinu þá tvo einu Íslendinga sem bera meistaragráðu frá Microsoft (Microsoft Certified Master) í Active Directory og Messaging.

Eina Microsoft og Amazon (AWS) vottaða fræðslufyrirtækið á Íslandi
Við viljum vekja athygli á því að Promennt er eina fræðslufyrirtækið á Íslandi sem er með sérstaka vottun fræðsluaðila frá Microsoft og Amazon Web Services, en til þess að öðlast slíka viðurkenningu þarf að uppfylla mjög ströng gæðaskilyrði bæði Microsoft og Amazon. Þar má t.d. nefna sérstaklega öflugan vélbúnað, sérsniðið vottað námsefni, úrvals aðstöðu og kennara með svokallaðar MCT gráður (Microsoft Certified Trainer).

Tímasetningar kennslu

Kennt er á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 17:30-21:00 og valda laugardaga.

Greiðslur

Ýmsar leiðir eru í boði til fjármögnunar á námsbrautinni og má þar nefna m.a. raðgreiðslur, styrkir frá stéttarfélögum, styrkir fyrir atvinnuleitendur ofl. Einnig geta þátttakendur námsbrauta athugað með lán hjá sínum viðskiptabönkum.

Staðnám eða Fjarkennsla í beinni - þitt er valið!

Þetta námskeið er kennt hjá okkur í Skeifunni en athugið að einnig er hægt að taka þátt í Fjarkennslu í beinni útsendingu. Það þýðir einfaldlega að þú getur tekið þátt í kennslustundinni algjörlega óháð staðsetningu. Hvort sem þú býrð á höfuðborgarsvæðinu og hefur ekki tök á að mæta í kennslustofuna, úti á landi eða erlendis, það skiptir ekki máli.

Við viljum vekja sérstaklega athygli á að hægt er að stunda bæði staðnám og fjarnám á sama námskeiðinu, þ.e. mæta stundum á staðinn og stundum vera á línunni, allt eftir því hvað hentar hverjum nemanda.

Kynntu þér nánari upplýsingar um Fjarkennsluna í beinni

 

Mikilvægar upplýsingar

Greiðslur: Bjóðum upp á VISA/MasterCard staðgreiðslulán til allt að 36 mánaða. Einnig bjóðum við nú upp á vaxtalausar léttgreiðslur í allt að 6 mánuði.
Styrkir: Flest stéttarfélög/fræðslusjóðir niðurgreiða námskeið hjá Promennt. Styrkurinn fer eftir rétt hvers og eins og getur numið allt að 90% (hafa ber í huga að þetta er þó misjafnt eftir stéttarfélögum/fræðslusjóðum).
►Vinsamlegast athugið að dagsetningar eru birtar með fyrirvara um að lágmarksþátttaka náist á námskeiðið.