Dags. | 2. mar '21 - 23. mar '21 |
Dagar | þri, fim, lau |
Tími | 17:30-21:00 (lau 09:00-16:00) |
Lengd | 50 std. - 9 skipti |
Verð | 399.000 kr. |
Námskeiðið fjallar um hvernig á að þjónusta og stilla Windows 10 skjáborð í fyrirtækjaumhverfi. Nemendur munu öðlast þekkingu á að setja upp, sérsníða og uppfæra Windows 10 stýrikerfi. Nemendur munu jafnframt læra að vinna með gögn, tengingu við mismunandi tæki sem og hvernig á að stilla nettengingu fyrir Windows 10, öryggismál og verndun gagna. Nemendur læra einnig hvernig á að tryggja Windows 10 stýrikerfið og vernda gögnin á tækinu. Að lokum læra nemendur hvernig á að stjórna og villuleita Windows 10.
Eitt próf frá Microsoft er innifalið í námskeiðsgjaldi.
Um er að ræða mjög gagnlega og áhugaverða námskeið sem gerir talsverðar kröfur til nemenda. Þetta nám hentar þeim sem hafa áhuga á að gera sér frama á upplýsingatæknisviði með kerfisstjórnun sem aðalgrein. Námskeiðið er einnig hluti af Framabraut - Kerfisstjórnun.
Allir kennarar Promennt á Framabraut-Kerfisstjórnun eiga það sameiginlegt að búa yfir gríðarlega mikilli reynslu í upplýsingatækni og hafa þar að auki Microsoft Certified Trainer gráðu frá Microsoft. Enn frekar erum við stolt af því að hafa í kennaraliðinu þá tvo einu Íslendinga sem bera meistaragráðu frá Microsoft (Microsoft Certified Master) í Active Directory og Messaging.
Eina Microsoft og Amazon (AWS) vottaða fræðslufyrirtækið á Íslandi
Við viljum vekja athygli á því að Promennt er eina fræðslufyrirtækið á Íslandi sem er með sérstaka vottun fræðsluaðila frá Microsoft og Amazon Web Services, en til þess að öðlast slíka viðurkenningu þarf að uppfylla mjög ströng gæðaskilyrði bæði Microsoft og Amazon. Þar má t.d. nefna sérstaklega öflugan vélbúnað, sérsniðið vottað námsefni, úrvals aðstöðu og kennara með svokallaðar MCT gráður (Microsoft Certified Trainer).
Kvöldhóp er kennt á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 17:30-21:00 og valda laugardaga.
Ýmsar leiðir eru í boði til fjármögnunar á námsbrautinni og má þar nefna m.a. raðgreiðslur, styrkir frá stéttarfélögum, styrkir fyrir atvinnuleitendur ofl. Einnig geta þátttakendur námsbrauta athugað með lán hjá sínum viðskiptabönkum.
Þetta námskeið er kennt hjá okkur í Skeifunni en athugið að einnig er hægt að taka þátt í fjarkennslu í beinni útsendingu. Það þýðir einfaldlega að þú getur tekið þátt í kennslustundinni algjörlega óháð staðsetningu. Hvort sem þú býrð á höfuðborgarsvæðinu og hefur ekki tök á að mæta í kennslustofuna, úti á landi eða erlendis, það skiptir ekki máli.
Við viljum vekja sérstaklega athygli á að hægt er að stunda bæði staðnám og fjarnám á sama námskeiðinu, þ.e. mæta stundum á staðinn og stundum vera á línunni, allt eftir því hvað hentar hverjum nemanda.Nemendur upptökur af öllum kennslustundum Promennt. Þetta veitir frábæran stuðning við námið sem mun gagnast nemendum sérlega vel hvort sem námið er stundað í fjarkennslu eða í staðnámi.
Kynntu þér nánari upplýsingar um fjarkennsluna í beinni ►
►Greiðslur: Bjóðum upp á VISA/MasterCard staðgreiðslulán til allt að 36 mánaða. Einnig bjóðum við nú upp á vaxtalausar léttgreiðslur í allt að 6 mánuði.
►Styrkir: Flest stéttarfélög/fræðslusjóðir niðurgreiða námskeið hjá Promennt. Styrkurinn fer eftir rétt hvers og eins og getur numið allt að 90% (hafa ber í huga að þetta er þó misjafnt eftir stéttarfélögum/fræðslusjóðum).
►Vinsamlegast athugið að dagsetningar eru birtar með fyrirvara um að lágmarksþátttaka náist á námskeiðið.
Flokkur | Dags. | Dagar | Tími | Verð | |
---|---|---|---|---|---|
Staðarnám / Onsite |
02.03. 2021 -
23.03. 2021
|
þri, fim, lau | 17:30-21:00 (lau 09:00-16:00) | 399.000 kr. | Skráning / Registration |
Fjarkennsla í beinni / Remote |
02.03. 2021 -
23.03. 2021
|
þri, fim, lau | 17:30-21:00 (lau 09:00-16:00) | 399.000 kr. | Skráning / Registration |
Þessi vefur notar vefkökur til að tryggja sem besta upplifun þegar hann er heimsóttur. Þessi borði hverfur þegar þú veitir okkur þitt samþykki. Með því að heimsækja vefi Promennt samþykkir þú skilmála okkar um vefkökur (cookies) Lesa nánar