dk - Pos

dkPos námskeið dk er fyrir alla þá sem nota dkPos, sér í lagi fyrir þá sem nota bakvinnslu til að stýra kössum og breyta uppsetningum

Námskeiðið er unnið í samstarfi við dk hugbúnað og eru kennarar námskeiðsins starfsmenn þar.

Markmið

Í lok námskeiðs:

  • Stjórnað útliti á kassa
  • Breytt verðum á vörum
  • Skoðað skýrslur og haft góða yfirsýn yfir sölu o.fl 

 

Viðfangsefni

Þátttakendur munu læra:

  • Að stofna vörur og breyta verðum
  • Að stofna og stilla sölumenn
  • Að breyta flýtihnöppum
  • Að skoða sölutölur og bera saman tímabil
  • Að stilla greiðslumáta á rétta bókhaldslykla
  • Að bóka reikninga rétt inn í dk
  • Helstu aðgerðir á sölukassa
  •  

Námsefni

Handbók um dkPos og aðgangur að dk og dkPos kennslugögnum í tölvum Promennt.

Staðnám eða Fjarkennsla í beinni - þitt er valið!

Þetta námskeið er kennt hjá okkur í Skeifunni en athugið að einnig er hægt að taka þátt í Fjarkennslu í beinni útsendingu. Það þýðir einfaldlega að þú getur tekið þátt í kennslustundinni algjörlega óháð staðsetningu. Hvort sem þú býrð á höfuðborgarsvæðinu og hefur ekki tök á að mæta í kennslustofuna, úti á landi eða erlendis, það skiptir ekki máli.

Við viljum vekja sérstaklega athygli á að hægt er að stunda bæði staðnám og fjarnám á sama námskeiðinu, þ.e. mæta stundum á staðinn og stundum vera á línunni, allt eftir því hvað hentar hverjum nemanda.

Þetta námskeið er ekki tekið upp.

Athugið að fjarnemar þurfa að setja upp dk hugbúnað á sinni tölvu og munu fá leiðbeiningar þess efnis fyrir upphaf námskeiðs.

Kynntu þér nánari upplýsingar um Fjarkennsluna í beinni

Mikilvægar upplýsingar

Greiðslur: Bjóðum upp á VISA/MasterCard staðgreiðslulán til allt að 36 mánaða. Einnig bjóðum við nú upp á vaxtalausar léttgreiðslur í allt að 6 mánuði.
Styrkir: Flest stéttarfélög/fræðslusjóðir/Vinnumálastofnun niðurgreiða námskeið hjá Promennt. Styrkurinn fer eftir rétt hvers og eins og getur numið allt að 90% (hafa ber í huga að þetta er þó misjafnt eftir stéttarfélögum/fræðslusjóðum).
►Vinsamlegast athugið að dagsetningar eru birtar með fyrirvara um að lágmarksþátttaka náist á námskeiðið.