Heilsu- og öryggisnámskeið

Promennt býður upp á heilsu- og öryggisnámskeið fyrir starfsfólk í iðnaði. Námskeiðin eru unnin út frá lögum nr. 46 frá  árinu 1980 um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum og út frá OSHAS 18001.

Tilgangur námsins er að stuðla að jákvæðu viðhorfi námsmanna til öryggismála. Ekki aðeins út frá lagalegri skyldu heldur til að bæta vinnuumhverfi og samstarf.  Í náminu er lögð áhersla á að menn sæki sér viðbótarþjálfun og þekkingu sem leiðir enn frekar að jákvæðri þróun á öryggisvitund.

Að loknu námskeiði fá þátttakendur skirteini þar sem kemur fram í hvaða öryggismálaflokkum þeir hafa lokið námskeiði í og gildistími.


Fyrir hverja?
Þeir sem sækja heilsu- og öryggisnámskeið eru starfsmenn í iðnaði sem, vinnu sinnar vegna, þurfa að bæta þekkingu sína í neðangreindum flokkum.

 

Yfirlit námskeiða sem í boði eru: