TOEFL og GRE

TOEFL og GRE

Promennt er viðurkennd prófamiðstöð fyrir TOEFL og GRE - próf. Það þýðir að Promennt heldur aðeins prófin fyrir ETS (www.ets.org) en ETS sér um allt utanumhald, skráningu, dagsetningar prófa og þjónustu á allan hátt.

 

ATHUGIÐ að skráningar í TOEFL og GRE próf fara eingöngu fram á vefnum www.ets.org

ATTENTION: The tests are only hosted by Promennt. Promennt does not register or have any information regarding tests. Registration takes place at: www.ets.org

 

Skráning fer fram á www.ets.org

Við viljum vekja athygli á því að allar upplýsingar um TOEFL og GRE prófin ásamt skráningu í próf er að finna á vef ETS, www.ets.org. Finndu dagsetningu í prófið sem hentar þér og skráðu þig í prófið. Á þessum vef er einnig að finna greinargóðar upplýsingar um undirbúning fyrir prófið, æfingapróf, kennsluefni ofl. Athugið að Promennt hefur ekkert með skráningarferlið að gera og getur því miður ekki aðstoðað við það, best er að hafa samband við þjónustuver ETS.

Takmarkað sætaval

Athugið að nánast undantekningalaust er uppbókað í TOEFL prófið og því hvetjum við fólk til að skrá sig mjög snemma (á www.ets.org).

Vandamál við skráningu?

Töluvert hefur borið á því að þeir sem eru að skrá sig fá höfnun á kreditkortin sín þrátt fyrir að næg heimild sé á kortinu. Til þess að koma greiðslum í gegn verður að hafa samband við kortafyrirtækin (Borgun fyrir MasterCard eða Valitor fyrir Visa) og láta opna fyrir erlendar færslur á netinu, hjá Visa heitir þetta Vottun Visa.

Undirbúningur

Próftakar sjá sjálfir um allan undirbúning fyrir prófið, sjá nánari upplýsingar hér fyrir neðan og svo bendum við einnig á síðuna www.spredenels.com.

Nánari upplýsingar:

TOEFL:

GRE: