Vinsælt og hagnýtt nám í grafískri hönnun sem er ætlað þeim sem eru að stíga fyrstu skrefin í grafískri vinnslu, vilja skapa sér forskot í frekara hönnunarnámi (t.d. á háskólastigi) og jafnvel hanna markaðsefnið sjálft.
Á námskeiði eru tekin fyrir þrjú hönnunarforrit, Photoshop (myndvinnsla), Illustrator (teikning) og InDesign (umbrot). Nemendur koma til með að hanna auglýsingar fyrir dagblöð og tímarit og vinna bækling, en einnig er farið í það hvernig ganga á frá verkefnum í Acrobat Distiller (PDF).
- ÁRSAÐGANGUR AÐ ADOBE CREATIVE CLOUD FYLGIR -
Þátttakendur þurfa að vera tölvuvanir til að geta nýtt sér námskeiðið að fullu. Gott er (þó ekki skilyrði) að þekkja eitthvað til stafrænnar myndvinnslu, grafíska miðlun og prentferli. Að öðru leyti eru forritin öll tekin frá grunni.
Í lok námskeiðs getur þátttakandi meðal annars:
Forrit sem tekin eru fyrir á þessu námskeiði (smelltu á heiti þeirra til að fá nánari lýsingu):
Allt kennsluefni innifalið og einnig fylgir ÁRSAÐGANGUR AÐ ADOBE CREATIVE CLOUD
Námið endar á lokaverkefni sem er mikilvægur hlekkur í því að læra hvernig unnið er með þessi tól í raunveruleikanum.
Kennt er á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 17:15-21:00.
Þetta námskeið er kennt hjá NTV í Hlíðasmára 9. Einnig er hægt að nýta sér fjarnámið í staðarnáminu. mæta stundum á staðinn og stundum vera á línunni, allt eftir því hvað hentar hverjum nemanda.
Kynntu þér nánari upplýsingar um fjarkennsluna í beinni ►
►Greiðslur: Hægt er að greiða í gegnum Netgíró (staðgreiðsla og dreifing) og bjóðum við einnig upp á VISA/MasterCard staðgreiðslulán til allt að 36 mánaða. Einnig bjóðum við nú upp á vaxtalausar léttgreiðslur í allt að 6 mánuði.
►Styrkir: Flest stéttarfélög/fræðslusjóðir og Vinnumálastofnun niðurgreiða námskeið hjá Promennt og NTV. Styrkurinn fer eftir rétt hvers og eins og getur numið allt að 90% (hafa ber í huga að þetta er þó misjafnt eftir stéttarfélögum/fræðslusjóðum).
►Vinsamlegast athugið að dagsetningar eru birtar með fyrirvara um að lágmarksþátttaka náist á námskeiðið.
Þessi vefur notar vefkökur til að tryggja sem besta upplifun þegar hann er heimsóttur. Þessi borði hverfur þegar þú veitir okkur þitt samþykki. Með því að heimsækja vefi Promennt samþykkir þú skilmála okkar um vefkökur (cookies) Lesa nánar