Prófstaður og mæting
Mæta skal ekki síðar en 30 mín. fyrir auglýstan próftíma.
Promennt er til húsa að Skeifunni 11b, sem er rautt þriggja hæða hús fyrir aftan Rúmfatalagerinn í Skeifunni.
Skráningarblað
Í afgreiðslu Promennt er afhent sérstakt skráningarblað á prófdegi. Vinsamlegast lesið skráningarblaðið vandlega yfir og athugið að það sem stendur innan gæsalappa þ.e. I agree to the
.in any form þarf að skrifa orðrétt og ekki með prentstöfum. Neðst á skráningarblaðinu eru mikilvægar reglur sem þarf að lesa vandlega.
Persónuskilríki
Allir próftakar verða að framvísa persónuskilríkjum, best að vera með vera með vegabréf.
Prófgögn
Prófið er á tölvutæku formi og eru tölvur Promennt notaðar í öllum tilvikum. Ekki skal koma með eigin tölvu. Allir próftakar fá glósublöð og skriffæri á staðnum, ath. að ekki er leyfilegt að koma með eigin skriffæri.
Annað
Við mælum með því að próftakar skilji síma, handtöskur og þess háttar eftir heima eða í bílnum og koma eingöngu með það sem þið nauðsynlega þurfið. Ekki er leyfilegt að koma með eigin skriffæri.