"Google AdWords hefur reynst okkur hjá Arctic Adventures afar vel í allri okkar vefmarkaðssetningu. Með aðstoð þess höfum við náð til okkar markhópa með árangursríkari hætti en áður, borið saman við aðra auglýsingamiðla. Möguleikarnir sem tólið býður upp á eru nánast ótæmandi og getum við fylgst með árangri okkar herferða nánast í rauntíma og gert breytingar sem fara samstundis í gagnið. Öll þau fyrirtæki sem hafa einhverja hugmynd um hverjir viðskipavinir þeirra eru ættu að geta nýtt sér AdWords, og þá sérstaklega ef sótt er á markaðssvæði erlendis. Hnitmiðaðri herferðir, hagræðing í kostnaði og betri yfirsýn eru meðal þess sem kemur fyrst upp í hugann. Með smá tilsögn ætti hver sem er að geta nýtt sér AdWords með árangursríkum hætti og það kæmi mér verulega á óvart ef notendur yrðu fyrir vonbrigðum."
"AdWords hjálpar fyrirtækjum að ná til nýrra markaða á einfaldan en um leið áhrifaríkan hátt. Það geta allir nýtt sér AdWords til þess að koma sér á framfæri. Það sem er svo frábært við þetta tól er að notendur hafa jafnan möguleika á að ná árangri, ef notuð er rétt aðferðafræði. Helsti kostur Google AdWords er að hægt er að nota tvær rásir til að fanga athygli væntanlegra viðskiptavina. Auglýsingar á Google search rásinni birtast þeim sem eru að leita eftir samskonar þjónustu og þú ert að auglýsa (push marketing). Auglýsingar á Google display network, hin rásin, birtast skilgreindum markhóp þínum þegar hann er að vafra um netið (pull marketing). Vefgreiningar hluti AdWords er mjög öflugur en þar getur þú t.d. séð fjölda þeirra sem hafa smellt á auglýsingarnar þínar, fjölda birtinga og hvernig herferðin þín stendur gagnvart keppinautum þínum. Google analytics, sem er nátengt tól, má svo tengja við AdWords og þá getur þú t.d. séð hvaða tekjum herferðin þín er að skila þér."
Google Adwords hentar afar vel þeim fyrirtækjum sem vilja selja vörur og/eða þjónustu sína gegnum vefinn. Adwords gefur aðilum tækifæri á góðum sýnileika á Google með mjög skömmum fyrirvara, þannig er Adwords nauðsynlegt markaðstól fyrir nýja aðila sem vilja ná fótfestu á Google. Einnig hentar Google Adwords vel þeim fyrirtækjum sem þegar eru með góðan sýnileika á Google en vilja bæta hann enn frekar t.a.m með því að finnast betur undir ákveðnum leitarorðum eða ná til fleiri markaðssvæða. Libius hefur aðstoðað fjölmörg fyrirtæki við að innleiða Google Adwords og nýta tólið í markaðsstarfi sínu. Má þar nefna 66°NORÐUR en Google Adwords hefur átt stóran þátt í þeim mikla vexti sem orðið hefur á erlendri vefsölu fyrirtækisins.