Frítt námskeið fyrir 60 ára og eldri

Er námskeið fyrir fólk, 60 ára og eldra, sem hefur þörf á námskeiði í tæknilæsi á snjalltæki s.s. spjaldtölvur og snjallsíma. Námskeiðið er frítt!

Þátttakendur geta tekið með sér eigin tæki til að læra á, t.d. snjallsíma/snjalltæki eða spjaldtölvur og mælt er með því.

Námskeiðinu er skipt í tvennt en kennt er á Android annars vegar og Apple hins vegar. Hámark 8 manns geta setið námskeiðið í einu.

Nánari upplýsingar um námskeið og skráning  ->  APPLE

Nánari upplýsingar um námskeið og skráning  -> ANDROID

Hægt er að skrá sig í gegnum síma í númerinu - 519 7550.