Námskynning 14. janúar

Núna í janúar munum við hafa sérstaka námskynningu fyrir áhugasama um nám hjá Promennt þar sem lögð verður sérstök áhersla á tækninámið, bókhaldsnám, sölu-, markaðs- og rekstrarnám ofl. Námskynningin verður haldin hérna hjá okkur í Promennt, Skeifunni 11b, 2.hæð (rauða húsið á bak við Rúmfatalagerinn). Á staðnum verða kennarar, fulltrúar nemenda og starfsfólk skólans til að taka á móti þér!


Námskynningin er þriðjudaginn 14. janúar kl. 17:30: SKRÁNING ►

  • Tækninám 
  • Bókhaldsgreinar
  • Sölu-, markaðs- og rekstrarnám

Skráðu þig endilega á fundinn (sérstaklega þeir sem vilja fylgjast með á netinu), það er bæði hægt að mæta á staðinn eða fylgjast með á netinu þar sem kynningarnar verða sendar út live á Facebook síðu Promennt. 

ATH það kostar ekki neitt að skrá sig.

Við hvetjum áhugasama til að kíkja til okkar, þar munu kennarar og fulltrúar frá nemendum verða á staðnum og fara nánar yfir námið og innihald þess ásamt því að gefa þeim sem ætla að skrá sig góð ráð til undirbúnings.

Að auki munum við fara yfir þá fjármögnunarmöguleika sem í boði eru. 

Endilega kíktu við - hlökkum til að sjá þig!