Námskynning 14. janúar: Tækninám- Kerfisstjórnun

Námskynning fyrir tækninámið-14.janúar 2016Fimmtudaginn 14. janúar munum við hafa sérstakan kynningarfund fyrir áhugasama um tækninámið þar sem sérstök áhersla er á Framabraut-Kerfisstjórnun og aðrar námsbrautir í kerfisstjórnun. Fundurinn hefst kl. 17:30 hérna hjá okkur í Promennt, Skeifunni 11b, 2.hæð (rauða húsið á bak við Rúmfatalagerinn).

Skráðu þig endilega á fundinn hér fyrir neðan, það er bæði hægt að mæta á staðinn eða fylgjast með á netinu. ATH það kostar ekki neitt að skrá sig.

Skráðu þig á kynningarfundinn - ath það kostar ekki neitt!

Við hvetjum áhugasama til að kíkja til okkar, þar munu kennarar og fulltrúi frá fyrrverandi nemendum vera á staðnum og fara nánar yfir námið og innihald þess ásamt því að gefa þeim sem ætla að skrá sig góð ráð til undirbúnings.

Að auki munum við fara yfir þá FJÁRMÖGNUNARMÖGULEIKA sem í boði eru og viljum taka fram að við kynnum með stolti glænýtt samstarf Promennt og Framtíðar námslánasjóðs sem tryggir nemendum Promennt á völdum námsleiðum möguleikann á náms- og framfærsluláni.Nánari upplýsingar um námslánin má finna hér ►

Endilega kíktu við!

Hér getur þú fengið nánari upplýsingar um Framabraut-Kerfisstjórnun ►