Námskynning 19. janúar: Bókhaldsgreinar

Þriðjudaginndaginn 19. janúar munum við hafa sérstakan kynningarfund fyrir áhugasama um bókhaldsnám. Sérstök áhersla verður á nám til undirbúnings prófa til viðurkennds bókara; Bókhald grunnur, Bókaranám fyrir lengra komna, Framabraut-Viðurkenndur bókari og Viðurkenndur bókari. Fundurinn hefst kl. 18:00 hérna hjá okkur í Promennt, Skeifunni 11b, 2.hæð (rauða húsið á bak við Rúmfatalagerinn).

Skráðu þig á kynningarfundinn - ath það kostar ekki neitt!

Skráðu þig endilega á fundinn hér til hliðar, það er bæði hægt að mæta á staðinn eða fylgjast með á netinu. ATH það kostar ekki neitt að skrá sig.

Við hvetjum áhugasama til að kíkja til okkar, þar munu kennarar og fulltrúi frá fyrrverandi nemendum vera á staðnum og fara nánar yfir námið og innihald þess ásamt því að gefa þeim sem ætla að skrá sig góð ráð til undirbúnings.

Að auki munum við fara yfir þá FJÁRMÖGNUNARMÖGULEIKA sem í boði eru og viljum taka fram að við kynnum með stolti glænýtt samstarf Promennt og Framtíðar námslánasjóðs sem tryggir nemendum Promennt á völdum námsleiðum möguleikann á náms- og framfærsluláni.Nánari upplýsingar um námslánin má finna hér ►

Endilega kíktu við!

Hér getur þú fengið nánari upplýsingar um möguleika á bókhaldsnámi hjá Promennt ►