Námskynning 20. ágúst

Núna í ágúst munum við hafa sérstaka námskynningu fyrir áhugasama um annars vegar tækninám, bókhaldsnám, sölu-, markaðs- og rekstrarnám ofl. Námskynningin verður haldin hérna hjá okkur í Promennt, Skeifunni 11b, 2.hæð (rauða húsið á bak við Rúmfatalagerinn). Á staðnum verða kennarar, fulltrúar nemenda og starfsfólk skólans til að taka á móti þér!


Námskynningin er þriðjudaginn 20. ágúst kl. 17:30

Skráðu þig endilega á fundinn (sérstaklega þeir sem vilja fylgjast með á netinu), það er bæði hægt að mæta á staðinn eða fylgjast með á netinu. ATH það kostar ekki neitt að skrá sig.

Við hvetjum áhugasama til að kíkja til okkar, þar munu kennarar og fulltrúar frá nemendum verða á staðnum og fara nánar yfir námið og innihald þess ásamt því að gefa þeim sem ætla að skrá sig góð ráð til undirbúnings.

Að auki munum við fara yfir þá FJÁRMÖGNUNARMÖGULEIKA sem í boði eru. 

Endilega kíktu við - hlökkum til að sjá þig!