Námskynning 27. nóvember

Núna í nóvember munum við hafa sérstaka námskynningu fyrir áhugasama um annars vegar tækninám og hins vegar bókhaldsnám. Námskynningin verður haldin hérna hjá okkur í Promennt, Skeifunni 11b, 2.hæð (rauða húsið á bak við Rúmfatalagerinn). Á staðnum verða kennarar, fulltrúar nemenda og starfsfólk skólans til að taka á móti þér! Ath að kynningarnar verða einnig sendar út á Facebook síðu Promennt.


Námskynningin er miðvikudaginn 27. nóvember kl. 17:30

Skráðu þig endilega á fundinn (sérstaklega þeir sem vilja fylgjast með á netinu), það er bæði hægt að mæta á staðinn eða fylgjast með á netinu, en fundirnir verða sýndir beint á Facebook síðu Promennt. https://www.facebook.com/Promennt/

Við hvetjum áhugasama til að kíkja til okkar, þar munu kennarar og fulltrúar frá nemendum verða á staðnum og fara nánar yfir námið og innihald þess ásamt því að gefa þeim sem ætla að skrá sig góð ráð til undirbúnings.

Að auki munum við fara yfir þá FJÁRMÖGNUNARMÖGULEIKA sem í boði eru. 

Endilega kíktu við - hlökkum til að sjá þig!