Ný námsbraut: Framabraut-Kerfisstjórnun

Framabraut-Kerfisstjórnun

Við hjá Promennt kynnum með stolti í fyrsta skipti svo öfluga námsbraut í kerfisstjórnun sem kennd er á Íslandi. Framabraut í Kerfisstjórnun er unnin í samstarfi við Microsoft og var námsbrautin sett upp í samvinnu við mörg af stærstu upplýsingatæknifyrirtækjum á Íslandi með þarfir þeirra í huga.

Um er að ræða mjög gagnlega og áhugaverða námsbraut sem gerir talsverðar kröfur til nemenda. Þetta nám hentar þeim sem hafa áhuga á að gera sér frama á upplýsingatæknisviði með kerfisstjórnun sem aðalgrein. Námið er því upplagt fyrir byrjendur í upplýsingatækni þar sem hvorki er krafist reynslu né annarrar menntunar á sviði upplýsingatækni.