Styrkur til náms - Framabraut Tæknistjórnun

Viltu útskrifast með alþjóðlega gráðu í Tæknistjórnun?

Promennt hefu tekið höndum saman við Advania og NTV - til að vekja athygli kvenna á Tæknistjórnun/kerfisstjórnun.

Markmið með átakinu er að auka áhuga fólks á kerfisstjórnun og tryggja að fleiri sæki sér menntun til að gegna þessu mikilvæga starfi.

Við bjóðum fjórum konum styrk sem nemur helmingi skólagjalda í skólunum.

Áhugasamar konur eru beðnar um að skrifa um það bil 300-400 orða greinargerð með umsókninni um hvers vegna það hafi áhuga á náminu og lýsingu á því hvers vegna það ætti að fá styrkinn. Umsóknarfrestur er til 13. janúar kl 23.59.

Framabraut-Tæknistjórnun er öflug Microsoft vottuð námsbraut með vottað námsefni sem lýkur með Microsoft prófum og gildir gráðan þín hvar sem er í heiminum.

Framabraut-Tæknistjórnun hefst 18. janúar og fer skráning fram á www.promennt.is