Twitter sem markaðstæki

Í fyrsta sinn á Íslandi! Twitter hefur verið að sækja hratt í sig veðrið á Íslandi og er án efa orðið eitt mikilvægasta markaðstækið á netinu. Íslendingar eru í auknum mæli byrjaðir að nota þennan spennandi samskiptamiðil og að því tilefni bjóðum þetta frábæra námskeið fyrir markaðsfólk og alla þá sem hafa áhuga á að komast af stað í notkun Twitter sem markaðstækis.

Við hjá Promennt, ÍMARK og Nordic eMarketing ásamt Svanhvíti Friðriksdóttur almannatengli höldum saman þetta sérhæfða námskeið í notkun Twitter. Markmiðið með námskeiðinu er að þátttakendur fái persónulega kennslu í notkun Twitter og geti notað Twitter sem markaðstæki til að koma sér eða fyrirtækinu á framfæri og auka sölu.

Nánari upplýsingar og skráning á Twitter sem markaðstæki