VB 2019: Prófhluti III-Raunhæft verkefni

***SKRÁNINGARFRESTUR FYRIR ÞETTA PRÓF ER LIÐINN OG HEFUR VERIÐ LOKAÐ FYRIR SKRÁNINGAR. ATH AÐ ENGAR UNDANTEKNINGAR ERU GERÐAR.***

Prófhluti III - Raunhæft verkefni er hluti af þeim prófum sem haldin eru til viðurkenningar bókara 2019 með vísan til laga nr. 145/1994 um bókhald. 

  • Staðsetning: hjá Promennt, Skeifunni 11b, 108 Reykjavík*.
  • Dagsetning: 14. desember 2019
  • Tímasetning: prófið hefst kl. 13:00 og stendur til kl. 18:00.

*Ath ekki er boðið upp á prófstaði á landsbyggðinni í þessu prófi.

Skráningarfrestur

***SKRÁNINGARFRESTUR FYRIR ÞETTA PRÓF ER LIÐINN OG HEFUR VERIÐ LOKAÐ FYRIR SKRÁNINGAR. ATH AÐ ENGAR UNDANTEKNINGAR ERU GERÐAR.***

Skráningarfrestur í prófhluta III rennur út mánudaginn 9. september kl. 23:59. ATH að enginn möguleiki er á að skrá sig eftir þann tíma og eru engar undantekningar gerðar þar á.

Próftökugjald og greiðslumöguleikar

Próftökugjald fyrir þetta próf er 37.500 kr. Til þess að öðlast próftökurétt þarf að skrá sig hér á síðunni og greiða prófgjald fyrir þetta próf í síðasta lagi á eindaga; mánudaginn 2. desember kl. 23:59. Greiðsluseðill verður sendur í heimabanka um leið og skráningarfrestur rennur út. ATH ekki er hægt að greiða greiðsluseðil eftir að eindaga lýkur.

Efnissvið prófsins

Um efnissvið prófsins vísast til 3. gr. reglugerðar nr. 686/2015 um próf til viðurkenningar bókara og til prófefnislýsingar sem birt er á heimasíðu atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins www.anr.is.

Leyfileg hjálpargögn í prófinu

  • Í prófhluta III er leyfilegt að nota öll hjálpargögn á pappír, en próftakar mega ekki hafa með sér rafræn gögn. Þetta merkir að próftakar mega taka með sér allar glærur úr námsefni, glósur á pappír, gömul próf og öll önnur hjálpargögn sem eru á pappír.
  • Leyfilegt er að nota yfirstrikunarpenna og fána í þeim gögnum sem tekin eru með í prófið.
  • Netaðgangur er ekki leyfður.

Verkefni er tengjast þessum prófhluta eru tekin á tölvu. Próftakar skulu hafa í huga að takmarkað pláss er fyrir hvern og einn próftaka við töku prófsins.

Lengdur próftími

Umsóknum um lengri próftíma og/eða önnur sérúrræði skal skila inn með því að senda tölvupóst á vbprof@promennt.is í síðasta lagi 29. nóvember.

Til að hægt sé að veita sértæk úrræði í prófinu þarft þú að verða þér út um gögn frá viðeigandi sérfræðingi, sem staðfestir þörf fyrir úrræði og koma í viðtal til náms- og starfsráðgjafa. Gengið verður frá sérstöku skriflegu samkomulagi um öll úrræði. Athugið að það getur tekið langan tíma að fá tíma hjá sérfræðingi svo að mælt er með að gerðar séu ráðstafanir strax.
Athugið að sum úrræði eru þess eðlis að þau krefjast sérstaks undirbúnings framkvæmdaraðila prófanna svo það er mikilvægt að sótt sé um sérúrræði með góðum fyrirvara (strax eftir skráningu í prófið).

Nánari upplýsingar um sérúrræði ►