Promennt og dk hugbúnaður í samstarf

Námskeið dk sem hingað til hafa verið haldin í höfuðstöðvum dk hugbúnaðar í Turninum á Smáratorgi verða framvegis haldin hjá okkur í  Promennt,  Skeifunni 11 b.

Kennarar námskeiðanna verða líkt og áður starfsmennn dk hugbúnaðar en allt utanumhald, skráning og skipulag er nú í höndum Promennt. Fyrstu námskeiðin annarinnar hefjast strax í næstu viku, 24. og 25. janúar, í Grunni, Launakerfinu og Fjárhag/Lánardrottnum.

Skráning á námskeiðin fer fram á heimasíðu okkar Promennt.

Skoðið nánar úrval námskeiða hér