dk- Fjárhagur/lánardrottnar

  • Rafræn námskeið í Fræðsluskýi Promennt

    Nánari upplýsingar þegar komið er inn á skráningarsíðu

Fjárhagsbókhalds- og lánadrottnanámskeið dk er fyrst og fremst hugsað fyrir þá sem eru að færa bókhald fyrirtækja og þurfa að sækja sér upplýsingar um fjárhagsbókhaldi.
Á þessu hnitmiðaða námskeiði í fjárhags- og lánadrottnakerfi dk læra þátttakendur bóknair í fjárhag og á samspil ýmissa undirkerfa í dk hugbúnaðnum annars vegar og dk fjárhagsbókhaldinu hins vegar.
Öll námsgögn eru á staðnum.

Námskeiðið er unnið í samstarfi við dk hugbúnað og eru kennarar námskeiðsins starfsmenn þar.

Markmið

Í lok námskeiðs getur þátttakandi:

  • Fært bókhald í dk kerfinu
  • Lesið inn gögn úr öðrum kerfum
  • Bókað í lánadrottnakerfi dk
  • Nýtt sér uppflettingar og skýrslur
  • Unnið í ýmsum undireiningum fjárhagskerfisins, s.s varðandi virðisaukaskatt, ársreikninga, fjárhagsáætlanir o.fl

Viðfangsefni

Fjárhagur
Þátttakendur munu læra:

  • Að stofna og viðhalda bókhaldslyklum
  • Að stofna fylgiskjalaseríu
  • Uppsetningu dagbókar og að færa bókhald í dagbók
  • Uppflettingar og skýrslur úr fjárhag
  • Uppsetningu á virðisaukaskatti, virðisaukaskattsskýrslu og uppgjör
  • Lausleg kynning á ársreikning.

Lánadrottnar
Þátttakendur munu læra:

  • Uppsetningu lánadrottna
  • Að stofna lánadrottinn
  • Samþykktarkerfi
  • Skrá reikninga
  • Uppsetningu og skýrslur úr lándrottnum
  • Greiðslubók

Námsefni

Handbók um lánardrottna-og fjárhagskerfi dk og aðgangur að dk kennslugögnum í tölvum Promennt.

Staðnám eða Fjarkennsla í beinni - þitt er valið!

Þetta námskeið er kennt hjá okkur í Skeifunni en athugið að einnig er hægt að taka þátt í Fjarkennslu í beinni útsendingu. Það þýðir einfaldlega að þú getur tekið þátt í kennslustundinni algjörlega óháð staðsetningu. Hvort sem þú býrð á höfuðborgarsvæðinu og hefur ekki tök á að mæta í kennslustofuna, úti á landi eða erlendis, það skiptir ekki máli.

Við viljum vekja sérstaklega athygli á að hægt er að stunda bæði staðnám og fjarnám á sama námskeiðinu, þ.e. mæta stundum á staðinn og stundum vera á línunni, allt eftir því hvað hentar hverjum nemanda.

Þetta námskeið er ekki tekið upp.

Athugið að fjarnemar þurfa að setja upp dk hugbúnað á sinni tölvu og munu fá leiðbeiningar þess efnis fyrir upphaf námskeiðs.

Kynntu þér nánari upplýsingar um Fjarkennsluna í beinni

Mikilvægar upplýsingar

Greiðslur: Bjóðum upp á VISA/MasterCard staðgreiðslulán til allt að 36 mánaða. Einnig bjóðum við nú upp á vaxtalausar léttgreiðslur í allt að 6 mánuði.
Styrkir: Flest stéttarfélög/fræðslusjóðir/Vinnumálastofnun niðurgreiða námskeið hjá Promennt. Styrkurinn fer eftir rétt hvers og eins og getur numið allt að 90% (hafa ber í huga að þetta er þó misjafnt eftir stéttarfélögum/fræðslusjóðum).
►Vinsamlegast athugið að dagsetningar eru birtar með fyrirvara um að lágmarksþátttaka náist á námskeiðið.