dk - Launakerfi

  • Síðdegishópur

    Dags. 11. apr '24 - 11. apr '24
    Dagar fim
    Tími 12:30-16:30
    Lengd 4 std. - 1 skipti
    Verð 30.000 kr.
  • Rafræn námskeið í Fræðsluskýi Promennt

    Nánari upplýsingar þegar komið er inn á skráningarsíðu

Launakerfisnámskeið dk er fyrir alla þá sem koma að útreikningi launa.
Á þessu hnitmiðaða námskeiði í launakerfi dk er launaútreikningur tekinn fyrir, allt frá stofnun launþega til gerðar launamiða í lok árs. Þátttakendur læra á alla helstu þætti er varða launakerfið. Öll námsgögn eru á staðnum.

Námskeiðið er unnið í samstarfi við dk hugbúnað og eru kennarar námskeiðsins starfsmenn þar. 

 

Markmið

Í lok námskeiðs getur þátttakandi:

  • Stofnað launþega
  • Sett upp launakerfið, þ.e þekkir uppsetningu launakerfis
  • Framkvæmt þær aðgerðir sem þarf að gera í lok árs, t.d varðandi launamiða
  • Gert launagreiningu
  • Notast við uppflettingar og skýrslur
  • Og fleira.

Viðfangsefni

Þátttakendur munu læra:

  • Uppsetningu launakerfis dk
  • Að stofna launþega
  • Launauppsetningu
  • Launakeyrslu, skráningu, innlestur og útreikninga
  • Ýmsar uppflettingar í launakerfi
  • Að nýta sér skýrslur úr launakerfi
  • Á launagreiningu dk
  • Þær aðgerðir sem þarf að fara í í lok árs, t.d launamiða.

Námsefni

Handbók um Launakerfi dk og aðgangur að dk kennslugögnum í tölvum Promennt.

Staðnám eða Fjarkennsla í beinni - þitt er valið!

Þetta námskeið er kennt hjá okkur í Skeifunni en athugið að einnig er hægt að taka þátt í Fjarkennslu í beinni útsendingu. Það þýðir einfaldlega að þú getur tekið þátt í kennslustundinni algjörlega óháð staðsetningu. Hvort sem þú býrð á höfuðborgarsvæðinu og hefur ekki tök á að mæta í kennslustofuna, úti á landi eða erlendis, það skiptir ekki máli.

Við viljum vekja sérstaklega athygli á að hægt er að stunda bæði staðnám og fjarnám á sama námskeiðinu, þ.e. mæta stundum á staðinn og stundum vera á línunni, allt eftir því hvað hentar hverjum nemanda.

Þetta námskeið er ekki tekið upp.

Athugið að fjarnemar þurfa að setja upp dk hugbúnað á sinni tölvu og munu fá leiðbeiningar þess efnis fyrir upphaf námskeiðs.

Kynntu þér nánari upplýsingar um Fjarkennsluna í beinni

Mikilvægar upplýsingar

Greiðslur: Bjóðum upp á VISA/MasterCard staðgreiðslulán til allt að 36 mánaða. Einnig bjóðum við nú upp á vaxtalausar léttgreiðslur í allt að 6 mánuði.
Styrkir: Flest stéttarfélög/fræðslusjóðir/Vinnumálastofnun niðurgreiða námskeið hjá Promennt. Styrkurinn fer eftir rétt hvers og eins og getur numið allt að 90% (hafa ber í huga að þetta er þó misjafnt eftir stéttarfélögum/fræðslusjóðum).
►Vinsamlegast athugið að dagsetningar eru birtar með fyrirvara um að lágmarksþátttaka náist á námskeiðið.

Flokkur Dags. Dagar Tími Verð