Cisco Certified Network Associate gráðan er talin ein sterkasta gráðan í upplýsingatækni sem völ er á. Gráðan hentar þeim sem vilja verða sérfræðingar í uppbyggingu á nútíma tölvunetum og þeim tækjum sem notuð eru í samskiptum á nær- og víðnetum.
Námsbrautin er undirbúningur fyrir prófið 200-301 sem er CCNA prófið frá CISCO. Um er að ræða mjög gagnlegt og áhugavert nám sem gerir talsverðar kröfur til nemenda.
NÝTT: nú fá nemendur upptökur af öllum kennslustundum í Fræðsluskýi Promennt. Þetta veitir frábæran stuðning við námið sem mun gagnast nemendum sérlega vel hvort sem námið er stundað í fjarkennslu eða í staðnámi.
Námið hentar jafnt þeim, sem hafa grunnþekkingu á tölvu- og netkerfi og langar að styrkja stöðu sína á vinnumarkaði, sem og Microsoft tæknimönnum sem vilja efla þekkingu sína á netkerfum.
Gert er ráð fyrir heimavinnu milli kennsludaga.
Góður skilningur og þekking á Windows umhverfinu og grunnþekking á netkerfum ásamt lestrarfærni í ensku.
Að námskeiði loknu eiga nemendur að geta:
Þetta námskeið er kennt hjá okkur í Skeifunni en athugið að einnig er hægt að taka þátt í fjarkennslu í beinni útsendingu. Það þýðir einfaldlega að þú getur tekið þátt í kennslustundinni algjörlega óháð staðsetningu. Hvort sem þú býrð á höfuðborgarsvæðinu og hefur ekki tök á að mæta í kennslustofuna, úti á landi eða erlendis, það skiptir ekki máli.
Við viljum vekja sérstaklega athygli á að hægt er að stunda bæði staðnám og fjarnám á sama námskeiðinu, þ.e. mæta stundum á staðinn og stundum vera á línunni, allt eftir því hvað hentar hverjum nemanda.
Kynntu þér nánari upplýsingar um fjarkennsluna í beinni ►
►Greiðslukjör: Bjóðum upp á VISA/MasterCard staðgreiðslulán til allt að 36 mánaða.
►Styrkir: Flest stéttarfélög og fagfélög styrkja félagsmenn sína myndarlega til náms hjá okkur. Kannaðu rétt þinn hjá þínu félagi.
►Annað: Allt kennsluefni er innifalið í námskeiðsgjaldi.
►Vinsamlegast athugið að dagsetningar eru birtar með fyrirvara um að lágmarksþátttaka náist á námskeiðið.
Þessi vefur notar vefkökur til að tryggja sem besta upplifun þegar hann er heimsóttur. Þessi borði hverfur þegar þú veitir okkur þitt samþykki. Með því að heimsækja vefi Promennt samþykkir þú skilmála okkar um vefkökur (cookies) Lesa nánar