Framabraut - Netöryggi

  • Kvöldhópur

    Dags. 15. okt '24 - 11. jún '25
    Dagar þri, fim, lau
    Tími 17:30-21:00 (lau 09:00-16:00)
    Lengd 411 std. - 54 skipti
    Verð 1.399.000 kr.

Framabraut-Netöryggi er ný og öflug námsbraut hjá Promennt. 

Þessari námsbraut er ætlað að mæta þeirri þörf, sem skapast hefur á síðustu árum, eftir sérfræðingum í netöryggismálum. Við heyrum allt of oft af netárársum sem gerðar eru á fyrirtæki og stofnanir út um allan heim og því er þörfin mikil á að fjölga sérfræðingum í greininni.

Námið gerir ekki kröfu um að nemendur hafi víðtæka þekkingu á öryggismálum en reynsla og þekking á virkni upplýsingakerfa hjálpar í náminu þó það sé alls ekki krafa.

Fyrir hverja?

Um er að ræða mjög gagnlega og áhugaverða námsbraut sem gerir talsverðar kröfur til nemenda. Þetta nám hentar þeim sem hafa áhuga á að gera sér frama á upplýsingatæknisviði með Netöryggi sem aðalgrein. Námið er því upplagt fyrir byrjendur í upplýsingatækni þar sem hvorki er krafist reynslu né annarrar menntunar á sviði upplýsingatækni. 

Stígðu þín fyrstu skref í tækniheiminum

Sérlega mikil eftirspurn er eftir fólki með sérfræðimenntun og sérfræðiþekkingu í upplýsingatækni um þessar mundir og leita íslensk fyrirtæki í sívaxandi mæli eftir starfsfólki í nemendahópi Promennt. Til þess að gera fólki kleift að kynnast þessum spennandi markaði bjóðum við hjá Promennt upp á þessa geysilega öflugu tveggja anna námsbraut í Netöryggi sem samanstendur af 6 námseiningum

Eina Microsoft og Amazon (AWS) vottaða fræðslufyrirtækið á Íslandi

Við vekjum athygli á að Promennt er eina fræðslufyrirtækið á Íslandi með sérstaka vottun fræðsluaðila frá Microsoft og Amazon Web Services, en til þess að öðlast slíka viðurkenningu þarf að uppfylla mjög ströng gæðaskilyrði bæði Microsoft og Amazon. Þar má t.d. nefna sérstaklega öflugan vélbúnað, sérsniðið vottað námsefni, úrvals aðstöðu og kennara með svokallaðar MCT gráður (Microsoft Certified Trainer).

Úrvalslið kennara - lærðu af þeim bestu!

Allir kennarar Promennt á Framabraut-Netöryggi eiga það sameiginlegt að búa yfir gríðarlega mikilli reynslu í upplýsingatækni og hafa þar að auki Microsoft Certified Trainer gráðu frá Microsoft. Enn frekar erum við stolt af því að hafa í kennaraliðinu þá tvo einu Íslendinga sem bera meistaragráðu frá Microsoft (Microsoft Certified Master) í Active Directory og Messaging.

Viðfangsefni

1. hluti: Netkerfi / Networking ► 50 kennslustd.

Í fyrsta hluta námsbrautarinnar er farið yfir grunnatriði í vinnu við netkerfi (Networking) sem er nauðsynleg undirstaða fyrir seinni einingar framabrautarinnar. Stuðst er að mestu við námsefnið Network+ frá Comptia.

 

2. Hluti: Fortinet NSE 1 / NSE 2 / NSE 3 ► 11 kennslustd.

Hér er farið í grunnþætti netöryggis.

 

3. hluti: Comptia security+ ► 50 kennslustd.

Comptia Security+ er alþjóðlega viðurkennd gráða sem staðfestir grunn þekkingu viðkomandi í tölvuöryggi og rekstri tæknibúnaðar. Námskeiðið kennir meðal annars: Hvernig maður metur öryggisstig tölvurekstrar og leiðir til að bæta það, daglegan öruggan rekstur og utanumhald um fjölbreytt tölvuumhverfi, meðal annars skýjahýsingar, farsíma og spjaldtölvur og IoT tæki, lýsingu á lögum og regluverki sem við þurfum að fylgja í dag, hvernig við fylgjumst með atburðum í tölvurekstri, greinum atvik og bregðumst við þeim.

 

4. hluti: Fortinet NSE 4 ► 63 kennslustd.

Þetta námskeið er NSE4 eru í grunninn 3 námskeið, sjá lýsingar hér að neðan:

 

Fortigate Security

Á þessu námskeiði munt þú læra hvernig á að nota helstu eiginleika FortiGate, þar á meðal öryggissnið.

Notaðar eru sýndarvélar til að prófa eldveggi og reglur í þeim, notendavottun og hvernig á að vernda netkerfi með notkun mismunandi aðferða, svo sem innbrotavörnum, vírusvörnum, vefsíun, forritastýringu og fleira. Þessi grundvallaratriði öryggisstjórnunar veita skilning á því hvernig á að innleiða grunn í netöryggi.

Lengd: 3 dagar ( 6 skipti)

 

Fortigate Infrastructure

Á þessu námskeiði munt þú læra hvernig á að nota algengustu FortiGate net- og innviðaeiginleikana. Meðal þess sem farið er í eru öryggisleiðir sem almennt eru notaðar í flóknum og stærri netkerfum en einnig öryggisstýrðum netkerfum, svo sem háþróuðum beinum, sýndarlénum (VDOM), ZERO Trust netaðgangur (ZTNA), SSL VPN, IPsec VPN, Single Sign On og greiningar áhættu.

Lengd: 2 dagar (4 skipti)

 

NSE4 Immersion

Í þessum hluta námskeiðsins er fyrst og fremst unnið í sýndarumhverfi og farið í mörg þeirra atriða sem koma fyrir í NS4 prófinu eins og eldveggjareglur, aðgangsvottun o.fl.

Lengd: 1 dagur (2 skipti)

 

5. hluti: Cybersecurity Analyst+ ► 50 kennslustd.

CompTIA CySa+ er alþjóðlega viðurkennd gráða sem byggir ofan á þekkinguna úr CompTIA Security+, námskeiðið kennir til að mynda það að setja upp búnað fyrir eftirlit og varnir gegn atburðum, greina hættur í nettraffík og bregðast við þeim. Einnig er kennt öruggt utanumhald forrita og búnaðar í rekstrarumhverfi fyrirtækja. Varnir og viðbrögð við mögulegum innbrotum og greining á atburðum, innleiðing öruggari tölvureksturs fyrirtækja með sterkri fylgni við öryggisstaðla, stefnur og viðeigandi regluverk.

 

6. hluti: Microsoft Security, Compliance, and Identity Fundamentals (SC-900) ► 20 kennslustd.

Þetta námskeið veitir grunnþekkingu á öryggishugtökum, eftirliti og hlítingu (laga og staðla ss. GDPR, ISO...) og auðkenningarhugtökum og tengdum skýjatengdum Microsoft lausnum.

 

7. hluti: Microsoft Security Operations Analyst (SC-200) ► 40 kennslustd.

Þetta er námskeið sem fjallar um hvernig er hægt að rannsaka, bregðast við og leita að ógnum með því að nota Microsoft Sentinel, Microsoft Defender for Cloud og Microsoft 365 Defender. Á þessu námskeiði munt þú læra hvernig hægt er að draga úr netógnum með því að nota þessa tækni. Nánar tiltekið munt þú stilla og nota Microsoft Sentinel auk þess að nota Kusto Query Language (KQL) til að framkvæma uppgötvun, greiningu og skýrslugerð. Námskeiðið var hannað fyrir fólk sem vinnur í öryggisaðgerðahlutverki og hjálpar nemendum að undirbúa sig fyrir prófið SC-200: Microsoft Security Operations Analyst.

8. hluti: Verkefnadagar/lokaverkefni seinni annar  ► 30 kennslustd.

í lok annar leggjum við lokaverkefni fyrir nemendur sem byggir á því efni sem kennt hefur verið á námskeiðinu. Að okkar mati er mikilvægt að fá að vinna með búnaðinn. Nemendur útbúa einnig verkáætlun sem byggir á ákveðnum kröfum sem settar eru fyrir. 

Námsmat

Ekki eru lögð fyrir formleg próf en mikil áhersla er lögð á að leiðbeinandi og þátttakendur fari sem oftast yfir það sem hefur áunnist til að ýta undir stöðugar framfarir.

Tímasetningar kennslu

Kennsla fer fram á þriðjudögum og fimmtudögum kl 17:30 - 21:00 og valda laugardaga frá kl. 9-16.

Staðnám eða fjarkennsla í beinni - þitt er valið!

Þetta námskeið er kennt hjá okkur í Skeifunni en hægt að taka þátt í fjarkennslu í beinni útsendingu. Það þýðir einfaldlega að þú getur tekið þátt í kennslustundinni algjörlega óháð staðsetningu. Hvort sem þú býrð á höfuðborgarsvæðinu og hefur ekki tök á að mæta í kennslustofuna, býrð úti á landi eða ert erlendis, það skiptir ekki máli.Við viljum vekja sérstaklega athygli á að hægt er að stunda bæði staðnám og fjarnám á sama námskeiðinu, þ.e. mæta stundum á staðinn og stundum vera á línunni, allt eftir því hvað hentar hverjum nemanda.

Nemendur upptökur af öllum kennslustundum í Microsoft Teams. Upptökurnar veita góðan stuðning við námið sem mun gagnast nemendum vel hvort sem námið er stundað í fjarkennslu eða í staðnámi.

Kynntu þér nánari upplýsingar um fjarkennsluna í beinni

Mikilvægar upplýsingar

Greiðslur: Bjóðum upp á VISA/MasterCard staðgreiðslulán til allt að 36 mánaða. Einnig bjóðum við nú upp á vaxtalausar léttgreiðslur í allt að 6 mánuði.
Styrkir: Flest stéttarfélög/fræðslusjóðir niðurgreiða námskeið hjá Promennt. Styrkurinn fer eftir rétt hvers og eins og getur numið allt að 90% (hafa ber í huga að þetta er þó misjafnt eftir stéttarfélögum/fræðslusjóðum).
►Vinsamlegast athugið að dagsetningar eru birtar með fyrirvara um að lágmarksþátttaka náist á námskeiðið.

Flokkur Dags. Dagar Tími Verð