dk - Gjaldmiðlar

  • Rafræn námskeið í Fræðsluskýi Promennt

    Nánari upplýsingar þegar komið er inn á skráningarsíðu

Gjaldmiðlanámskeið dk er gert til þess að þátttakendur öðlist þekkingu á að vinna með gjaldmiðla í dk, stemma gjaldmiðla af og reikna gengismuns bæði handvirkt og vélrænt.
Á þessu hnitmiðaða námskeiði í notkun gjaldmiðla í dk er farið yfir helstu notkunarmöguleika þeirra í kerfinu.

Öll námsgögn eru á staðnum.

Námskeiðið er unnið í samvinnu við dk hugbúnað og eru kennarar námskeiðis starfsmenn þar.

Markmið

Í lok námskeiðs getur þáttakandi:

  • Sett upp gjaldmiðla og stofnað nýja
  • Sótt gengi rafrænt í banka og sett upp handvirkt í dk hugbúnaði
  • Fært bókhald í erlendum gjaldmiðli
  • Reiknað út gengismun rafrænt
  • Fært gengismunadagbók
  • Sett upp gjaldmiðla á lánadrottna og skuldunauta
  • Gert sölureikninga í erlendri mynt

Viðfangsefni

Þátttakendur munu læra eftirfarandi:


Uppsetningu gjaldmiðla

  • Uppsetning gjaldmiðla
  • Stofnun nýrra gjaldmiðla
  • Hvernig gengi gjaldmiðla er sótt rafrænt til banka
  • Hvernig gengi gjaldmiðla er sett handvirkt í dk hugbúnaði
  • Hvað ber að varast
  • Hvernig hægt er að færa bókhald í erlendum gjaldmiðli
  • Hvernig hægt er að reikna gengismun rafrænt í dk hugbúnaði

Fjárhagsbókhald

  • Uppsetningu gjaldmiðla á bókhaldslyklum
  • Útreikning gengismunar í fjárhag
  • Færslu gengismunadagbókar

Skuldunautar

  • Uppsetning gjaldmiðla á skuldunautum
  • Útreikning gengismunar

Lánardrottnar

  • Uppsetning gjaldmiðla á lánardrottnum
  • Útreikning gengismunar

Sölureikningar

  • Reikningar í erlendri mynt
  • Hvernig hægt er að hafa mismunandi reikningaform eftir skuldunautum (gjaldmiðlum)

Námsefni

Handbók um gjaldmiðla í dk hugbúnaðnum og aðgangur að dk kennslugögnum í tölvum Promennt.

Staðnám eða Fjarkennsla í beinni - þitt er valið!

Þetta námskeið er kennt hjá okkur í Skeifunni en athugið að einnig er hægt að taka þátt í Fjarkennslu í beinni útsendingu. Það þýðir einfaldlega að þú getur tekið þátt í kennslustundinni algjörlega óháð staðsetningu. Hvort sem þú býrð á höfuðborgarsvæðinu og hefur ekki tök á að mæta í kennslustofuna, úti á landi eða erlendis, það skiptir ekki máli.

Við viljum vekja sérstaklega athygli á að hægt er að stunda bæði staðnám og fjarnám á sama námskeiðinu, þ.e. mæta stundum á staðinn og stundum vera á línunni, allt eftir því hvað hentar hverjum nemanda.

Þetta námskeið er ekki tekið upp.

Athugið að fjarnemar þurfa að setja upp dk hugbúnað á sinni tölvu og munu fá leiðbeiningar þess efnis fyrir upphaf námskeiðs.

Kynntu þér nánari upplýsingar um Fjarkennsluna í beinni

Mikilvægar upplýsingar

Greiðslur: Bjóðum upp á VISA/MasterCard staðgreiðslulán til allt að 36 mánaða. Einnig bjóðum við nú upp á vaxtalausar léttgreiðslur í allt að 6 mánuði.
Styrkir: Flest stéttarfélög/fræðslusjóðir/Vinnumálastofnun niðurgreiða námskeið hjá Promennt. Styrkurinn fer eftir rétt hvers og eins og getur numið allt að 90% (hafa ber í huga að þetta er þó misjafnt eftir stéttarfélögum/fræðslusjóðum).
►Vinsamlegast athugið að dagsetningar eru birtar með fyrirvara um að lágmarksþátttaka náist á námskeiðið.