dk - Sölureikningar og birgðir

  • Síðdegishópur

    Dags. 10. apr '24 - 10. apr '24
    Dagar mið
    Tími 12:30-16:30
    Lengd 4 std. - 1 skipti
    Verð 30.000 kr.
  • Rafræn námskeið í Fræðsluskýi Promennt

    Nánari upplýsingar þegar komið er inn á skráningarsíðu

Sölureikninga- og birgðanámskeið dk er fyrir alla þá sem eru að vinna með birgðir, starfsmenn á lager, í innkaupum og sölumenn.
Á þessu hnitmiðaða námskeiði í sölureikninga- og birðgakerfum dk er farið vel í sölukerfi dk og yfir það ferli sem á sér stað í birgðum frá innkaupum til sölu. Þátttakendur læra á alla helstu þætti er varða bæði sölureikninga- og birgðakerfi.

Öll námsgögn eru á staðnum.

Námskeiðið er unnið í samvinnu við dk hugbúnað og eru kennarar námskeiðis starfsmenn þar.

Markmið

Í lok námskeiðs getur þátttakandi:

  • Gert sölureikninga, sölupantanir og sölutilboð
  • Stofnað vörur og nýtt sér möguleika á vöruspjaldi
  • Nýtt sér birgðageymslur
  • Framkvæmt birðga- og verðbreytingar
  • Nýtt sér skýrslur og uppflettingar
  • Gert sölu- og birgðagreiningar

Viðfangsefni

Þátttakendur munu læra:

  • Á sölureikninga, sölupantanir og sölutilboð
  • Að stofna vöru
  • Á birgðageymslur
  • Að gera birgða-og verðbreytingar
  • Sölu- og birgðagreiningar
  • Á uppflettingar og skýrslur
  • Einnig er farið létt yfir uppskriftir og afsláttavinnslur

Námsefni

Handbók um Sölureikninga- og birgðakerfi dk og aðgangur að dk kennslugögnum í tölvum Promennt.

Staðnám eða Fjarkennsla í beinni - þitt er valið!

Þetta námskeið er kennt hjá okkur í Skeifunni en athugið að einnig er hægt að taka þátt í Fjarkennslu í beinni útsendingu. Það þýðir einfaldlega að þú getur tekið þátt í kennslustundinni algjörlega óháð staðsetningu. Hvort sem þú býrð á höfuðborgarsvæðinu og hefur ekki tök á að mæta í kennslustofuna, úti á landi eða erlendis, það skiptir ekki máli.

Við viljum vekja sérstaklega athygli á að hægt er að stunda bæði staðnám og fjarnám á sama námskeiðinu, þ.e. mæta stundum á staðinn og stundum vera á línunni, allt eftir því hvað hentar hverjum nemanda.

Þetta námskeið er ekki tekið upp.

Athugið að fjarnemar þurfa að setja upp dk hugbúnað á sinni tölvu og munu fá leiðbeiningar þess efnis fyrir upphaf námskeiðs.

Kynntu þér nánari upplýsingar um Fjarkennsluna í beinni

Mikilvægar upplýsingar

Greiðslur: Bjóðum upp á VISA/MasterCard staðgreiðslulán til allt að 36 mánaða. Einnig bjóðum við nú upp á vaxtalausar léttgreiðslur í allt að 6 mánuði.
Styrkir: Flest stéttarfélög/fræðslusjóðir/Vinnumálastofnun niðurgreiða námskeið hjá Promennt. Styrkurinn fer eftir rétt hvers og eins og getur numið allt að 90% (hafa ber í huga að þetta er þó misjafnt eftir stéttarfélögum/fræðslusjóðum).
►Vinsamlegast athugið að dagsetningar eru birtar með fyrirvara um að lágmarksþátttaka náist á námskeiðið.

Flokkur Dags. Dagar Tími Verð