dk - Verkbókhald

  • Rafræn námskeið í Fræðsluskýi Promennt

    Nánari upplýsingar þegar komið er inn á skráningarsíðu

Verkbókhaldsnámskeið dk er fyrir alla þá sem eru að vinna með verk, s.s hvað varðar reikningsgerð, stjórnun, skráningu verka o.þ.h.
Á þessu hnitmiðaða námskeiði í verkbókhaldi er farið yfir ferli verks, stofnun, skráningu tíma og kostnaðar og gerð verkreikninga.

Öll námsgögn eru á staðnum.

Námskeiðið er unnið í samstarfi við dk hugbúnað og eru kennarar námskeiðsins starfsmenn þar.

Markmið

Í lok námskeiðs getur þátttakandi:

  • Sett upp verkbókhald
  • Stofnað verk og nýtt sér alla möguleika á verkspjaldi
  • Skráð tíma og kostnað á verk
  • Sett upp og gert verkreikninga
  • Nýtt sér verkgreiningu
  • Nýtt sér uppflettingar og skýrslur

Viðfangsefni

Þátttakendur munu læra:

  • Uppsetningu á verkbókhaldi
  • Að stofna verk og viðhalda þeim
  • Að skrá tima og konstað á verk
  • Að setja upp og gera verkreikinga
  • Á verkgreiningu
  • Á uppflettingar og skýrslur

Námsefni

Handbók um Verkbókhald dk og aðgangur að dk kennslugögnum í tölvum Promennt.

Staðnám eða Fjarkennsla í beinni - þitt er valið!

Þetta námskeið er kennt hjá okkur í Skeifunni en athugið að einnig er hægt að taka þátt í Fjarkennslu í beinni útsendingu. Það þýðir einfaldlega að þú getur tekið þátt í kennslustundinni algjörlega óháð staðsetningu. Hvort sem þú býrð á höfuðborgarsvæðinu og hefur ekki tök á að mæta í kennslustofuna, úti á landi eða erlendis, það skiptir ekki máli.

Við viljum vekja sérstaklega athygli á að hægt er að stunda bæði staðnám og fjarnám á sama námskeiðinu, þ.e. mæta stundum á staðinn og stundum vera á línunni, allt eftir því hvað hentar hverjum nemanda.

Þetta námskeið er ekki tekið upp.

Athugið að fjarnemar þurfa að setja upp dk hugbúnað á sinni tölvu og munu fá leiðbeiningar þess efnis fyrir upphaf námskeiðs.

Kynntu þér nánari upplýsingar um Fjarkennsluna í beinni

Mikilvægar upplýsingar

Greiðslur: Bjóðum upp á VISA/MasterCard staðgreiðslulán til allt að 36 mánaða. Einnig bjóðum við nú upp á vaxtalausar léttgreiðslur í allt að 6 mánuði.
Styrkir: Flest stéttarfélög/fræðslusjóðir/Vinnumálastofnun niðurgreiða námskeið hjá Promennt. Styrkurinn fer eftir rétt hvers og eins og getur numið allt að 90% (hafa ber í huga að þetta er þó misjafnt eftir stéttarfélögum/fræðslusjóðum).
►Vinsamlegast athugið að dagsetningar eru birtar með fyrirvara um að lágmarksþátttaka náist á námskeiðið.