Upptökupróf - Viðurkenndur bókari- Prófhluti II - Skattskil

Upptökupróf- Prófhluti II - Skattskil er hluti af þeim prófum sem haldin eru til viðurkenningar bókara 2023 með vísan til laga nr. 145/1994 um bókhald.

Upptökupróf er í boði skv. eftirfarandi upplýsingum:

Prófið er rafrænt heimapróf

    • Dagsetning: Mánudagur 12. febrúar 2024
    • Tímasetning: Prófið hefst kl. 13:00 og stendur til kl. 16:00.
    • Skráningarfrestur: Skráningarfrestur rennur út fimmtudaginn 25. janúar 2024
    • Eindagi: 2. febrúar 2024
    • Próftökuréttur: ATH að aðeins þeir sem skráðu sig í og greiddu fyrir aðalprófið í prófhluta I haustið 2023 eiga próftökurétt í þetta upptökupróf.

*Þó háð því að lágmarksfjöldi próftaka náist.


Skráningarfrestur

Skráningarfrestur í prófhluta I rennur út fimmtudaginn 25. janúar 2024 kl. 23:59. ATH að enginn möguleiki er að skrá sig eftir þann tíma.

Um prófið

Prófið verður rafrænt heimapróf.

Prófið verður tekið á Excel í vafra. Tölvubúnaður og nettenging er alfarið á ábyrgð próftaka.

Próftökugjald og greiðslumöguleikar

Próftökugjald fyrir þetta próf er 42.500 kr. Til þess að öðlast próftökurétt þarf að skrá sig hér á síðunni og greiða prófgjald fyrir þetta próf í síðasta lagi á eindaga; föstudaginn 2. febrúar kl. 23:59. Greiðsluseðill verður sendur í heimabanka um leið og skráningarfrestur rennur út. ATH ekki er hægt að greiða greiðsluseðil eftir að eindaga lýkur.

Efnissvið prófsins

Um efnissvið prófsins vísast til 3. gr. reglugerðar nr. 1101/2021 um próf til viðurkenningar bókara og til prófefnislýsingar sem birt er á heimasíðu Menningar- og viðskiptaráðuneytisins: https://www.stjornarradid.is/verkefni/atvinnuvegir/vidskipti/bokhald/profefnislysing

Leyfileg hjálpargögn í prófinu

Prófin eru rafræn og eru öll gögn leyfileg.

Prófefnislýsinguna má nálgast á vefsvæði prófnefndar viðurkenndra bókara á heimasíðu Menningar- og viðskiptaráðuneytisins: https://www.stjornarradid.is/verkefni/atvinnuvegir/vidskipti/bokhald/profefnislysing

Lengdur próftími

Til að hægt sé að veita sértæk úrræði í prófinu þarft þú að verða þér út um gögn frá viðeigandi sérfræðingi, sem staðfestir þörf fyrir úrræði og jafnvel koma í viðtal til náms- og starfsráðgjafa. Gengið verður frá sérstöku skriflegu samkomulagi um öll úrræði. Athugið að það getur tekið langan tíma að fá tíma hjá sérfræðingi svo að mælt er með að gerðar séu ráðstafanir strax.
Mikilvægt er að sótt sé um sérúrræði með góðum fyrirvara (strax eftir skráningu í prófið).

Nánari upplýsingar um sérúrræði ►